Fotbolti.net
18.11.26 - 15:19
Elvar Geir Magnússon

ÞÞÞ verður FIFA dómari

Þórður Þorsteinsson Þórðarson með rauða spjaldið.

Þórður Þorsteinsson Þórðarson með rauða spjaldið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á fundi stjórnar KSÍ í síðasta mánuði var samþykkt illaga dómaranefndar að nýjum alþjóðalista dómara.

Þórður Þorsteinsson Þórðarson kemur nýr inn á listann og verður því FIFA dómari.

ÞÞÞ, eins og hann er oft kallaður, hefur tekið öruggum framförum og er kominn í hóp bestu dómara landsins. Hann var einn besti dómari ársins á Íslandi og valinn dómari ársins af leikmönnum.
Stefán mjög stoltur af bróður sínum - „Getur náð mjög langt"
TENGT EFNI

Stefán mjög stoltur af bróður sínum - „Getur náð mjög langt"

Vilhjálmur Alvar Þórarinsson, Ívar Orri Kristjánsson og Helgi Mikael Jónasson eru allir áfram á FIFA listanum en Jóhann Ingi Jónsson dettur af honum.

Gylfi Már Sigurðsson, Birkir Sigurðarson, Eysteinn Hrafnkelsson, Egill Guðvarður Guðlaugsson, Kristján Már Ólafs, Ragnar Þór Bender og Guðmundur Ingi Bjarnason eru FIFA aðstoðardómarar.

Þá er Bríet Bragadóttir FIFA dómari í kvennaflokki og Tijana Krstic er ný á lista yfir FIFA aðstoðardómara.
Tijana Krstic er orðin FIFA aðstoðardómari.

Tijana Krstic er orðin FIFA aðstoðardómari.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.