18.11.26 - 09:00
Elvar Geir Magnússon
Pochettino í einkaþotu - Camara til Liverpool?

Mauricio Pochettino.

Mynd: EPA

Camara í leik með Senegal.

Mynd: EPA

Kounde vill fara frá Barcelona.

Mynd: EPA

Zaha gæti snúið aftur til Palace.

Mynd: EPA

Mauricio Pochettino.

Mynd: EPA

Liverpool hefur forskot á Chelsea í baráttu um leikmann Mónakó, Barcelona útilokar að reyna við Virgil van Dijk og Bruno Fernandes og Wilfried Zaha gæti snúið aftur til Crystal Palace. Þetta og fleira í slúðurpakkanum.
Mauricio Pochettino er í einkaþotu á leið til Manchester eftir að hafa stýrt Bandaríkjunum til sigurs gegn Haítí. Argentínumaðurinn lendir rétt fyrir hádegi og tekur formlega við hjá Manchester United. (Mail)
Liverpool leiðir í baráttunni um Lamine Camara (22), sengegalskan miðjumann Mónakó. Chelsea hefur ekki útilokað að reyna aftur að fá hann. (Caught Offside
Hansi Flick, stjóri Barcelona, segist ekki vilja fá hollenska miðvörðinn Virgil van Dijk (35) hjá Liverpool eða portúgalska miðjumanninn Bruno Fernandes (32) hjá Manchester United, vegna aldurs þeirra. (El Nacional)
Jules Kounde, sem er á óskalistsa Chelsea, er sífellt ákveðnari í að yfirgefa Barcelona í janúar. Franski hægri bakvörðurinn hefur aðeins byrjað þrjá leiki í La Liga á þessu tímabili. (Football Insider)
Enski miðjumaðurinn Declan Rice (27) hefur gert munnlegt samkomulag um nýjan langtímasamning við Arsenal. (Sky Sports)
Rice verður einn af launahæstu leikmönnum Arsenal með samning sem felur í sér hækkun upp í um 300.000 pund á viku. (Guardian)
Manchester United og Barcelona eru að leiða kapphlaupið um að fá Gabriel Rajkovic (15), norskan vængmann Valerenga, sem er talinn gríðarlegt efni. (Teamtalk)
Wilfried Zaha (34), fyrrverandi vængmaður Crystal Palace, hefur verið að æfa hjá félaginu síðan samningur hans við tyrkneska félagið Galatasaray rann út í sumar. Fílabeinsstrendingurinn gæti gengið aftur til liðs við Palace. (Talksport)
Sunderland hefur áhuga á að fá Lloyd Kelly (28), fyrrverandi varnarmann Bournemouth og Newcastle, til liðs við sig en Englendingurinn á erfitt með að fá byrjunarliðssæti hjá Juventus. (Chronicle)
Framtíð Michael Keane (33), varnarmanns Everton, er í óvissu þar sem samningur hans rennur út í sumar og hann hefur aðeins byrjað einn leik í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. (Liverpool Echo)
Newcastle United og Sunderland munu eiga erfitt með að fá til sín Sydie Peck (21), enskan miðjumann Sheffield United, í janúar þar sem félagið vill ekki selja leikmenn á miðju tímabili. (Football Insider)
Jurgen Klopp hefur greint frá því að hann hafi reynt að fá landsliðsmarkvörðinn Marc-André ter Stegen (34) á meðan hann stýrði Liverpool. Ter Stegen kaus hins vegar að vera áfram hjá Barcelona fremur en að fara á Anfield. (Goal)
Sunderland vill fá til sín miðjumanninn Franck Zambo Anguissa (31) frá Napoli. Hann á að baki landsleiki fyrir Kamerún og hefur áður leikið í ensku úrvalsdeildinni með Fulham. (Sport Witness)
Leon Scarlett (17), kantmaður QPR, hefur vakið áhuga Eintracht Frankfurt og AC Milan eftir að hafa unnið sér inn sæti í aðalliði félagsins á þessu tímabili. (Standard)
PSV Eindhoven hefur lagt fram fyrsta tilboð upp á 1,5 milljónir punda í belgíska miðjumanninn Kevin De Bruyne (35) sem áður lék með Manchester City en er nú á mála hjá Napoli. (De Telegraaf)
Lionel Scaloni, landsþjálfari Argentínu, hefur gefið í skyn að Lionel Messi (39) gæti snúið aftur í landsliðið sem hluti af þjálfarateymi sínu en Messi hefur lagt landsliðsskóna á hilluna. (TNT Sports)