Fotbolti.net
18.11.26 - 12:41
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Man Utd vonsvikið með tilkynningu JJ Gabriel

Man Utd vonsvikið með tilkynningu JJ Gabriel
Canon

Mynd: Man Utd

Aðilar hjá Manchester United eru vonsviknir að JJ Gabriel hafi í gær birt myndband á miðlum sínum til staðfestingar um brotthvarf sitt frá félaginu án þess að ræða við neinn hjá félaginu fyrir birtingu.

Sóknarmaðurinn er sterklega orðaður við Real Madrid en hann er efnilegur 16 ára leikmaður sem á þó enn eftir að spila sinn fyrsta keppnisleik í meistaraflokki.

Ekki hefur gengið hjá United að ná sambandi við Gabriel eða fjölskyldu hans síðasta mánuðinn. Hann er áfram skráður í akademíu félagsins og United hefur ekki fengið meldingu frá neinum varðandi afskráningu.
JJ Gabriel kveður Man Utd (Staðfest)
TENGT EFNI

JJ Gabriel kveður Man Utd (Staðfest)

United mun fá lögfræðinga sér til aðstoðar ef það finnur fyrir því að annað félag hafi hvatt Englendinginn til að taka ákvörðun um að fara frá United.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.