Fotbolti.net
18.11.26 - 09:12
Elvar Geir Magnússon

Pochettino ætlar að gera Manchester rauða á ný

Mauricio Pochettino.

Mauricio Pochettino.

Canon

Mynd: EPA

Mauricio Pochettino segir að hann muni endurvekja Manchester United sem farsælasta fótboltalið borgarinnar. Pochettino er í einkaþotu á leið til Manchester eftir að hafa stýrt Bandaríkjunum til sigurs gegn Haítí.

Argentínumaðurinn lendir rétt fyrir hádegi og tekur formlega við sem stjóri Manchester United.

Eftir 2-0 sigur gegn Haítí í síðasta leik sínum sem landsliðsþjálfari Bandaríkjanna ræddi hann við TNT Sports. Meðal sérfræðinga í setti var DaMarcus Beasley, sem fór á láni til Manchester City 2006. Hann sagði á léttu nótunum „Manchester er blá, hún verður alltaf blá“.

Pochettino svaraði:

„Ekki möguleiki, þú munt sjá það. Gefðu mér tíma og það mun breytast. Við erum spenntir því nýja áskorunin er stór en það er adrenalínið sem maður vill finna í starfinu. Við erum að fá öðruvísi verkefni en við höfum reynsluna til að takast á við það. Við þurfum að nota heilbrigða skynsemi okkar í því hvernig við ætlum að nálgast alla hluti. Við vitum að þetta er ekki staða sem félag eins og Manchester United og aðdáendur eiga skilið," sagði Pochettino.
Pochettino: Framtíðin er björt
TENGT EFNI

Pochettino: Framtíðin er björt


Pochettino ætlar að gera Manchester rauða á ný
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.