Fotbolti.net
19.01.16 - 11:30
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Bellerín í bakverði

David de Gea og félagar.

David de Gea og félagar.

Canon

Mynd: Getty Images

Jafntefli varð niðurstaðan í leikjum toppliða Arsenal og Leicester í nýliðinni umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Umferðinni lauk í gær með lífsnauðsynlegum sigri Swansea gegn Watford.
Manchester United vann Liverpool í tilþrifa- og gæðalitlum stórleik helgarinnar og Manchester City saxaði á efstu liðin, er aðeins stigi á eftir Arsenal og Leicester.

Hér má sjá úrvalslið vikunnar en þeir sem eru valdir vinna sér inn pizzuveislur frá Domino\'s.


David de Gea var maður leiksins á Anfield en hann átti fjórar mjög góðar vörslur.

Hector Bellerín hefur verið frábær á tímabilinu og á heldur betur þátt í góðu gengi Arsenal. Í vinstri bakverði er Charlie Daniels hjá Bournemouth sem skoraði og lagði upp í 3-0 sigri gegn Norwich City.

Miðverðir eru Ashley Williams, sem skoraði sigurmark Swansea gegn Watford ásamt því að vera traustur varnarlega, og Ryan Shawcross hjá Stoke sem var mjög öflugur í markalausu jafntefli gegn Arsenal.

Georginio Wijnaldum skoraði markið sem réði úrslitum í mikilvægum 2-1 sigri gegn West Ham og Cesc Fabregas hjá Chelsea er farinn að sýna sínar bestu hliðar á ný þó það hafi ekki dugað nema til jafnteflis gegn Everton.

James Ward-Prowse skoraði tvívegis í 3-0 sigri Southampton gegn West Bromwich Albion. Spennandi ungur Englendingur. Danski landsliðsmaðurinn Christian Eriksen tók með sér skotskóna í sigri Tottenham gegn Sunderland.

Diego Costa hjá Chelsea og Sergio Aguero hjá Manchester City eru í fremstu víglínu í 4-4-2 leikkerfinu. Aguero skoraði tvö í 4-0 sigri City gegn Crystal Palace.
Ashley Williams, fyrirliði Swansea.

Ashley Williams, fyrirliði Swansea.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.