Fotbolti.net
19.01.21 - 19:07
Aksentije Milisic

Emil spilar sinn fyrsta leik eftir krossbandsslit

Emil spilar sinn fyrsta leik eftir krossbandsslit
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nú var að hefjast leikur KR og Fjölnis í B-riðli Reykjavíkurmótsins.
Emil Ásmundsson, leikmaður KR, er að spila sinn fyrsta leik eftir krossbandsslit en hann gekk í raðir KR fyrir síðasta tímabil. Hann sleit krossband fyrir rétt rúmu ári síðan.

Þá er Grétar Snær Gunnarsson að spila sinn fyrsta leik fyrir KR en Dofri Snorrason, Baldur Sigurðsson og Andri Freyr Jónasson eru allir að spila sinn fyrsta leik fyrir Fjölni.

Fylkir og Fram eru einnig að spila í sama riðli og þá er einnig leikið í A-riðli.

Þar mætast Þróttur R og Víkingur R annars vegar og ÍR og Leiknir R hins vegar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.