Kasper Högh er leikmaður sem hefur slegið í gegn í Meistaradeildinni á þessu tímabili. Hann var stórkostlegur í mögnuðum sigri Bodö/Glimt gegn Inter í gær þar sem hann skoraði eitt mark og lagði upp tvö.
Hann skoraði jafnframt tvennu gegn Manchester City á dögunum. Hann er núna til að mynda orðaður við Celtic, sem er stærsta félagið í Skotlandi.
Hann skoraði jafnframt tvennu gegn Manchester City á dögunum. Hann er núna til að mynda orðaður við Celtic, sem er stærsta félagið í Skotlandi.
Það er ekki skrítið að það skuli gleymast að þessi 25 ára gamli sóknarmaður spilaði með Val sumarið 2020. Hann kom hingað á lánssamningi frá danska félaginu Randers og ætlaði að skora mörk. „Mitt markmið er að þroskast sem manneskja, ég mun standa á eigin fótum, og inni á vellinum mun ég vonandi spila mikið og skora mörk," sagði Högh þegar hann kom í Val en hann var þá að stíga upp úr meiðslum.
Fótbolti.net ræddi í dag við Harald Árna Hróðmarsson sem var aðstoðarþjálfari Vals þegar Högh kom til félagsins. Hann endaði á því að spila fimm leiki og skoraði ekki mark.
„Þegar hann kom í Val var hann enn að jafna sig á liðþófa aðgerð sem hann hafði farið í fyrr um sumarið. Hann var þess vegna ekki í sínu besta formi en hann er með mjög skýra og sterka eiginleika sem voru framúrskarandi. Hann er góður með bakið í markið, mikill stökkraftur og hraði og með fyrstu snertingu og grunntækni fyrir hátt getustig," segir Haraldur Árni.
„Okkur fannst hann mjög góður en vegna meiðslanna gat Heimir ekki notað hann mikið nema til að leysa Patrick af hólmi í lok leikja. Það var svo sem ástæðan fyrir því að hann var sóttur, Sverrir Hjaltested var með slitið krossband og enginn annar eiginlegur framherji í okkar hóp á þeim tíma. Kasper átti að styðja við Patrick og gerði það prýðilega. Kasper var mjög skemmtilegur karakter, líflegur gaur sem hafði gaman af lífinu og passaði vel inn í leikmannahópinn."
Er að slá gjörsamlega í gegn
Haraldur segist hafa fylgst með Högh eftir að hann fór frá Val. Hann spilaði með Hobro og AaB frá Álaborg en fór svo yfir til Noregs þar sem hann gekk í raðir Stabæk. Hann skoraði þar átta mörk í 17 leikjum sem varð til þess að Bodö/Glimt, sem er besta liðið í Noregi, ákvað að taka hann. Þar hefur hann gjörsamlega sprungið út.
„Ég hef fylgst með honum og heyri stöku sinnum í honum. Hann hefur tekið góð skref eftir að hann fór frá Randers og bætt sig jafnt og þétt," segir Halli og bætir við:
„Kasper er sniðinn fyrir Kjetil Knudsen og hans leikstíl hjá Bodö/Glimt. Knudsen hefur ávallt haft hávaxna og vinnusama framherja. Hlutverk Kaspers passar vel við eiginleika hans og liðið er auðvitað frábært þannig að þetta er gott match. Svo er hann bara mættur í félagið á góðum tíma, liðið hefur verið á stanslausri uppleið og hann hefur bara þurft að gera það sem hann er góður í."
En hversu langt getur hann náð?
„Kasper getur eflaust spilað í einhverjum af stærstu deildum heims en Bodö/Glimt hefur áður átt svipaða framherja sem hafa sprungið út í félaginu en ekki farið í hæstu hæðir í Evrópuboltanum. Hann myndi passa vel í ítalska boltann að mínu mati og fær vonandi að spreyta sig í stærri deild en miðað við stöðuna á Bodö/Glimt held ég að hann sé fínn þar," sagði Haraldur Árni að lokum.
Það var mikill áhugi á Högh í janúarglugganum í síðasta mánuði en Bodö/Glimt setti 10 milljón punda verðmiða á hann. Það er tæpir 1,7 milljarðar.
Athugasemdir





