Fotbolti.net
19.04.23 - 20:22
Arnar Laufdal Arnarsson

Ágúst Orri: Set hann upp í samskeytin

Auglýsing
Ágúst í leiknum gegn Val á dögunum

Ágúst í leiknum gegn Val á dögunum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
Hinn 18 ára gamli Ágúst Orri Þorsteinsson var á skotskónum í dag er Breiðablik unnu Fjölnismenn 0-2 í 32- liða úrslitum Mjólkurbikarsins í stórskemmtilegum leik.
"Við vorum með góða stjórn á leiknum sérstaklega í byrjun, svo missum við aðeins stjórnina á leiknum en í seinni hálfleik fannst mér við alltaf vera með þetta" Sagði Ágúst í viðtali við Fótbolta.net strax eftir leik.

Ágúst skoraði seinna mark Blika snemma í seinni hálfleik eftir klafs í teignum.

"Þetta var frekar skrítið, markmaðurinn hjá Fjölni heldur ekki boltanum, ég tek bara eitt touch og set hann upp í samskeytin svona meter frá markinu. Mjög ánægður að fá að spila og vona að ég fái margar mínútur í sumar"

Ágúst var keyptur til sænska stórveldisins Malmö síðasta vetur en er kominn aftur heim, hvernig er það?

"Mér finnst miklu betra að vera kominn heim. Að vera í svona U-19 ára bolta í Malmö var frekar soft, svo var ég bara ekki nægilega nálægt aðalliðinu til þess að halda áfram, þannig að ég kom bara heim og reyni að fara aftur erlendis á næstu árum"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.