Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 19. maí 2021 14:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Shaw aðstoðar aðdáanda sem var hótað banni
Luke Shaw með Jóhann Berg Guðmundsson á hælunum.
Luke Shaw með Jóhann Berg Guðmundsson á hælunum.
Mynd: EPA
Luke Shaw, leikmaður ársins hjá Manchester United, bauð aðdáanda fram aðstoð sína á samfélagsmiðlum í gær.

Stuðningsmenn sneru aftur á Old Trafford í gær þegar Man Utd gerði 1-1 jafntefli við Fulham. Stuðningsmennirnir létu vel í sér heyra og klæddist stór hluti grænu og gulu til að mótmæla Glazer-fjölskyldunni, eigendum Man Utd.

Shaun Logan, stuðningsmaður sem fékk að fara á völlinn, henti gulum og grænum trefli sínum inn á völlinn þegar Shaw var að fara að taka hornspyrnu.

Öryggisverðir sáu þetta og fjarlægðu Logan af vellinum. Logan segir að sér hafi verið hótað þriggja ára banni frá leikjum Manchester United.

Hann deildi þessu á Twitter og Shaw sá það. Vinstri bakvörðurinn ætlar að gera það sem hann getur til að hjálpa stuðningsmanninum sem segist eiga miða á úrslitaleik Evrópudeildarinnar í Gdansk í Póllandi þar sem Man Utd mætir Villarreal.

Hér að neðan má sjá hvernig samskiptin fóru fram. Luke Shaw, maður fólksins.


Athugasemdir
banner
banner
banner