Fotbolti.net
19.05.22 - 16:45
Elvar Geir Magnússon

Walker og Stones mættir til æfinga fyrir lokaumferðina

Kyle Walker er 31 árs.

Kyle Walker er 31 árs.

Canon

Mynd: EPA

Varnarmennirnir Kyle Walker og John Stones snúa báðir til baka af meiðslalista Manchester City og eru væntanlega leikfærir fyrir leikinn gegn Aston Villa í lokaumferðinni.

Þetta eru nokkuð óvæntar fréttir en talið var að þeir myndu ekki koma meira við sögu á tímabilinu.

Walker hefur ekki spilað síðan hann fór meiddur af velli í 3-1 tapi City gegn Real Madrid í Meistaradeildinni þann 4. maí.

Stones hefur ekki spilað síðan í fyrri leiknum gegn Real Madrid þann 26. apríl.
En báðir eru þeir mættir aftur til æfinga. City þarf sigur gegn Aston Villa til að vera öruggt með fjórða Englandsmeistaratitil sinn á fimm árum.

City er með eins stigs forystu á Liverpool þegar ein umferð er eftir.

Ruben Dias hefur ekki getað æft vegna meiðsla sem hann hlaut gegn Newcastle snemma í þessum mánuði.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.