Jasmín Erla Ingadóttir, leikmaður Stjörnunnar, var að vonum ánægð með 4-0 sigur á ÍBV í Bestu-deild kvenna í dag. Hún sagði það vera gott að klára síðasta leikinn fyrir EM pásuna með góðum sigri.
„Já mjög gott, sérstaklega eftir Keflavíkurleikinn þar sem við hefðum nú átt að setja nokkur mörk en gerðum það ekki. Þannig það er mjög gott að setja fjögur."
„Fyrri hálfleikur var frekar erfiður og þær voru frekar þéttar og bara góðar varnarlega. En í seinni hálfleik þá mættum við bara miklu betri og kláruðum þetta eiginlega bara finnst mér í byrjun seinni hálfleiks," sagði Jasmín Erla.
Lestu um leikinn: Stjarnan 4 - 0 ÍBV
Það gekk illa hjá Stjörnunni að opna vörn ÍBV í fyrri hálfleiknum en í seinni hálfleiknum tókst þeim að finna margar opnanir og skora þrjú mörk.
„Ég held að við vorum bara þolinmóðari. Við vissum þegar við komum út í seinni að þær yrðu áfram þéttar og nýttum okkur bara að fara utan á þær og finna opnanir þegar þær opnuðust."
Jasmín skoraði tvö mörk með um tveggja mínútna millibili í upphafi síðari hálfleiks og hefði hæglega getað sett þrennu í dag.
„Ég er bara ógeðslega ánægð með okkur stelpurnar bara í allt sumar. Þannig ég gæti ekki verið glaðari," sagði Jasmín.
Viðtalið í heild má sjá í spilaranum fyrir ofan, þar talar Jasmín meðal annars um EM hléið sem er framundan.