Fotbolti.net
19.06.26 - 03:03
Brynjar Ingi Erluson

HM: Mexíkó fyrsta þjóðin í 32-liða úrslitin

Luis Romo, markaskorari Mexíkó, í baráttunni í nótt

Luis Romo, markaskorari Mexíkó, í baráttunni í nótt

Canon

Mynd: EPA

Mexíkó 1 - 0 Suður-Kórea
1-0 Luis Romo ('50 )
Mexíkó varð fyrsta þjóðin til að tryggja sér sæti í 32-liða úrslit heimsmeistaramótsins með 1-0 sigri á Suður-Kóreu í Guadalajara í Mexíkó í nótt. Sigurmarkið kom eftir gjöf frá markverði gestanna.

Fyrri hálfleikurinn var líklega einn sá leiðinlegasti á mótinu til þessa. Suður-Kóreska liðið var mjög þétt og almennt var lítið um færi enda um afar mikilvægan leik að ræða fyrir báðar þjóðir, sem vissu að sigur myndi koma öðru hvoru þeirra í 32-liða úrslit.

Besta færi fyrri hálfleiks kom þegar Heung-Min Son fékk boltann vinstra megin. Hann var aleinn á auðum sjó og lyfti boltanum hátt yfir Raul Rangel, sem kom út á móti. Boltinn stefndi í netið, en þá mætti Edson Alvarez með svakalega björgun með bakfallsspyrnu.

Markið hefði þó ekki talið þar sem Son var rangstæður, en Alvarez hafði enga hugmynd um það. Þetta kveikti aðeins í áhorfendum, en ekki í leikmönnum.

Undir lok fyrri hálfleiks fóru mexíkósku stuðningsmennirnir að baula, bersýnilega mjög ósáttir við spilamennsku sinna manna. Það færðist þó meiri gleði og líf í þá í byrjun síðari hálfleiks með hjálp andstæðinganna.

Mexíkó var líflegra og fór að ógna aðeins, en það voru markmannsmistök sem færðu liðinu fyrsta mark leiksins.

Julian Quinones, sem var magnaður í síðasta leik, átti þá fyrirgjöf inn á Raul Jimenez sem fór í skallaeinvígi við miðverði Suður-Kóreu. Þaðan skaust boltinn hátt upp í loftið.

Markvörðurinn Seung-Gyu Kim ákvað að hlaupa út og ætlaði að handsama boltann, en lenti á Gi-Hyuk, varnarmanni liðsins, og missti boltann til Luis Romo sem setti hann í autt markið.

Klaufalegt allt saman og Mexíkó komið yfir. Þegar hálftími var eftir kom mjög óvænt skipting, en Heung-Min Son, fyrirliði Suður-Kóreu, var tekinn af velli og Hwang Hee-Chan kom inn á í hans stað.

Gestirnir fóru að færa sig ofar á völlinn, enda fullir af örvæntingu í leit að jöfnunarmarki, en þeir voru afar slakir á síðasta þriðjungi vallarins og náðu að skapa sér lítið fyrir vatnspásuna.

Rétt eftir pásuna fékk Jimenez tækifæri til að gera endanlega út um leikinn þegar hann fékk frábæra sendingu frá Quinones á fjærstöngina og náði að stýra boltanum á markið. Kim sá hins vegar við honum og var greinilega búinn að jafna sig á mistökunum.

Kóreumenn komu sér í frábæra stöðu mínútu síðar. Langur bolti kom á hægri vænginn á Yang Hyun-Jung, sem setti boltann fyrir á dauðafrían Oh Hyeon-Gyu. Boltinn var aðeins of langur og svo var rangstaða flögguð, en miðað við endursýninguna mátti ansi litlu muna.

Þeir áttu í mestu vandræðum með að halda sér réttstæðum, en voru samt vel inni í leiknum.

Varamaðurinn Obed Vargas var nálægt því að gera annað mark Mexíkó á 85. mínútu. Boltinn datt fyrir hann fyrir utan teiginn og hann tók fast viðstöðulaust skot sem stefndi í bláhornið, en Kim var eins og köttur í markinu og náði að bægja hættunni frá. Hann hélt sínum mönnum inni í leiknum.

Tveimur mínútum síðar fengu Kóreumenn sitt besta færi í leiknum og langbesta færi leiksins. Fyrirgjöfin var fullkomin, með hægri fæti frá vinstri vængnum og í innsveiflu inn á fjærstöngina á Oh, sem var metra frá markinu. Rangel varði hins vegar stórkostlega. Hyun-Jun Yang náði að pota í frákastið en viðbrögðin voru upp á tíu hjá Rangel, sem handsamaði boltann.

Þetta var tækifærið en heppnin var ekki með Kóreumönnum, sem reyndu og reyndu að finna jöfnunarmark. Þeir áttu tvö skallafæri undir lokin, en báðar tilraunir framhjá markinu.

Mexíkó vann þar með sinn annan leik og er fyrsta þjóðin sem tryggir sér sæti í 32-liða úrslitum mótsins. Suður-Kórea getur hins vegar bókað sæti sitt með sigri á Suður-Afríku í lokaumferðinni.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Son fékk dauðafæri í fyrri hálfleik en Edson Alvarez bjargaði frábærlega á línu. Rangstöðuflaggið fór á loft stuttu síðar.

Son fékk dauðafæri í fyrri hálfleik en Edson Alvarez bjargaði frábærlega á línu. Rangstöðuflaggið fór á loft stuttu síðar.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.