Fotbolti.net
19.06.26 - 02:22
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu markmannsklúðrið - Mexíkó skrefi nær 32-liða úrslitum

Sjáðu markmannsklúðrið - Mexíkó skrefi nær 32-liða úrslitum
Canon

Mynd: EPA

Mexíkó er komið með annan fótinn í 32-liða úrslit, en heimamenn voru að komast í 1-0 gegn Suður-Kóreu eftir skelfileg markmannsmistök.
Það hefur verið lítið um að vera í leiknum eða alveg fram að þessu stórfurðulega marki.

Luis Romo gerði markið á 50. mínútu en hann fékk það algerlega á silfurfati.

Fyrirgjöfin kom frá vinstri frá Julian Quinones og á miðjan teiginn á Raul Jimenez sem fór upp í baráttu við varnarmenn Suður-Kóreu.

Þaðan fór boltinn hátt upp í loft og ætlaði Seung-gyu Kim að handsama boltann, en hljóp á Gi-Hyuk Lee þannig þeir duttu báðir í grasið áður en boltinn datt fullkomlega fyrir Romo sem kom Mexíkó í forystu.

Agalegt hjá Suður-Kóreu, en heimamenn í Mexíkó kvarta ekki. Þeir eru núna rúmum hálftíma frá því að koma sér í 32-liða úrslitin.

Sjáðu mistökin og markið hér
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.