Fotbolti.net
19.07.17 - 13:30
Arnar Daði Arnarsson

Tilburg drukknaði í bláa hafinu

Auglýsing
Íslensku stuðningsmennirnir voru hressir í gær.

Íslensku stuðningsmennirnir voru hressir í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Það var gríðarleg stemning í miðbæ Tilburg í gær fyrir leik Íslands og Frakklandi í Evrópumóti kvenna sem fram fer í Hollandi.

Tæplega þrjú þúsund Íslendingar fylgdust með leiknum á Koning Willem II vellinum.
Mikið húllum hæ var í miðborginni fyrir leik og byrjuðu íslensku stuðningsmennirnir að hittast um hádegi en leikurinn var ekki fyrr en 20:45 á hollenskum tíma.

Tæplega tveimur tímum fyrir leik var síðan haldið af stað í skrúðgöngu á völlinn. Sú ganga vakti gríðarlega athygli bæjarbúa, sem margir hverjir tóku upp símann og tóku myndir og myndskeið af skrúðgöngunni, fór út á svalir, út í glugga eða jafnvel tóku þátt í göngunni.

Hægt er að sjá myndskeið úr skrúðgöngunni í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.