Fotbolti.net
19.07.26 - 22:43
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Rodri bestur á HM - Cubarsi besti ungi leikmaðurinn

Rodri bestur á HM - Cubarsi besti ungi leikmaðurinn
Canon

Mynd: EPA

Rodri, miðjumaður heimsmeistara Spánar, var valinn besti leikmaður mótsins eftir að liðið vann Argentínu í úrslitaleiknum í kvöld.

Rodri staðfestir stöðu sína sem einn besti miðjumaður í heimi en hann vann Ballon d'or árið 2024. Þá hefur hann unnið Meistaradeildina, ensku deildina fjórum sinnum, EM og nú HM.
Landi hans, hinn 19 ára gamli, Pau Cubarsi, varnarmaður Barcelona, var valinn besti ungi leikmaðurinn. Þá fékk Unai Simon gullhanskann en hann fékk aðeins eitt mark á sig á mótinu.

Frakkinn Kylian Mbappe var markahæstur með 10 mörk í átta leikjum og fékk gullskóinn. Lionel Messi tókst ekki að skora í kvöld en hann skoraði átta mörk og fær silfurskóinn. Jude Bellingham skoraði sjö og fær bronsskóinn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.