Fotbolti.net
19.08.26 - 07:40
Elvar Geir Magnússon

Al-Hilal girnist Kane og Watkins

Enski sóknarmaðurinn Harry Kane.

Enski sóknarmaðurinn Harry Kane.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Enska úrvalsdeildin hefst á föstudag og við hvetjum lesendur til að skrá sig í Fantasy deild Fótbolta.net og 38 umferða hlaðvarpsþáttarins. En hér er slúðurskammtur dagsins.
Umboðsmenn enska landsliðsfyrirliðans Harry Kane (33) hafa rætt við Al-Hilal í Sádi-Arabíu en þessi markahrókur Bayern München er opinn fyrir skiptum í framtíðinni. (TalkSport)

Enski sóknarmaðurinn Ollie Watkins (29) hefur náð munnlegu samkomulagi við Al-Hilal en arabíska félagið hefur enn ekki gert formlegt tilboð til Aston Villa. (TeamTalk)

Newcastle hefur spurt Manchester City út í spænska miðjumanninn Nico Gonzalez (24). (The Athletic)

Tilraun Sunderland til að fá franska varnarmanninn Dayann Methalie (20) gæti runnið út í sandinn eftir að áhyggjur komu upp í læknisskoðun. (Daily Mail)

AC Milan hefur hafnað 8,5 milljóna punda tilboði Coventry í enska miðjumanninn Ruben Loftus-Cheek. (Tuttosport)

Real Sociedad hefur gert tilraun til að fá mexíkóska miðjumanninn Edson Alvarez (28) frá West Ham en áhugi Ajax hefur kólnað. (Sky Sports)

Bayer Leverkusen hefur hafnað öðru tilboði Ipswich í argentínska miðjumanninn Exequiel Palacios (27). (Florian Plettenberg)

Tottenham íhugar að gera tilboð í úkraínska varnarmanninn Illia Zabarnyi (23) hjá Paris St-Germain eftir að hafa selt Cristian Romero til Atletico Madrid. (TeamTalk)

Enski miðjumaðurinn Curtis Jones (25) hjá Liverpool er áfram efstur á óskalista Inter sem telur sig geta keypt hann fyrir 29 milljónir punda. (CaughtOffside)

Úlfarnir hafa blandað sér í baráttuna um kantmanninn Amario Cozier-Duberry (21) hjá Brighton. Rangers og Bolton vilja enska unglingalandsliðsmanninn. (The Argus)

Malaga er á eftir enska kantmanninum Ryan Kent (29) sem hefur verið félagslaus síðan hann yfirgaf Seattle Sounders í janúar. (Fichajes)
Ollie veifaðu.

Ollie veifaðu.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.