19.08.26 - 10:53
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gisti á Húsavík eftir höfuðhögg

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Marvin Darri Steinarsson, markvörður Vestra, fékk höfuðhögg undir lok leiksins gegn Völsungi á mánudag.
„Í lok leiks varð Marvin Darri markvörður Vestramanna fyrir meiðslum sem litu ekki vel út úr stúkunni og þurfti að yfirgefa völlinn í sjúkrabíl. Græni herinn óskar Marvin góðs bata og vonandi kemst hann aftur á völlinn sem fyrst," segir í færslu Græna hersins, stuðningsmannasveitar Völsungs, á Facebook.
Marvin fór út í teiginn þegar Völsungur átti hornspyrnu, kýldi boltann í burtu en fékk högg á höfuðið, vankaðist og þurfti aðhlynningu.
Hann var fluttur með sjúkrabíl af vellinum á Heilbrigðisstofnunina Norðurlands sem er á Húsavík og gisti þar um nóttina.

Atvikið átti sér stað á 87. mínútu leiksins, um sex mínútna hlé varð á leiknum og Breki Þór Hermannsson, framherji Vestra, kláraði leikinn í markinu. Völsungur vann leikinn 2-0.
Marvin komst heim til Ísafjarðar í gær, þjálfarinn Daniel Badu og sjúkraþjálfarinn Ferran gistu á Húsavík og fóru með honum og öðrum leikmanni heim daginn eftir leik.
Næsti leikur Vestra verður gegn Leikni á laugardag. Vestri er í fallbaráttu en getur farið mjög langt með að tryggja sætið í deildinni með sigri á Leikni.
Marvin komst heim til Ísafjarðar í gær, þjálfarinn Daniel Badu og sjúkraþjálfarinn Ferran gistu á Húsavík og fóru með honum og öðrum leikmanni heim daginn eftir leik.
Næsti leikur Vestra verður gegn Leikni á laugardag. Vestri er í fallbaráttu en getur farið mjög langt með að tryggja sætið í deildinni með sigri á Leikni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Þróttur R. | 19 | +21 | 37 |
| 2 | Afturelding | 18 | +22 | 36 |
| 3 | Fylkir | 19 | +7 | 34 |
| 4 | HK | 19 | +9 | 32 |
| 5 | Njarðvík | 19 | +6 | 32 |
| 6 | Grótta | 18 | +1 | 27 |
| 7 | Leiknir R. | 19 | +2 | 25 |
| 8 | Vestri | 19 | -11 | 24 |
| 9 | ÍR | 19 | -7 | 22 |
| 10 | Grindavík | 19 | -6 | 21 |
| 11 | Völsungur | 19 | -12 | 20 |
| 12 | Ægir | 19 | -32 | 8 |