19.08.26 - 11:44
Elvar Geir Magnússon
Sjáðu svakalega þrennu Köru Guðmunds - „Hvað er að gerast?“

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Kara Guðmundsdóttir skoraði glæsilega þrennu í stórsigri KR á útivelli gegn Keflavík í Lengjudeild kvenna í gær.
Mörkin úr leiknum má sjá hér að neðan. Fyrsta mark Köru var glæsilegt en það þriðja var enn glæsilegra. Hún lék listilega á mótherja sína áður en hún skoraði og innsiglaði þrennu í fyrri hálfleik.
„Hvað er að gerast? Guð minn almáttugur, hvað var þetta?" sagði Hörður Ágústsson sem lýsti leiknum beint á Livey þegar Kara gerði þriðja markið.
Kara, sem fædd er árið 2010, er dóttir Gumma Ben og Kristbjargar Helgu Ingadóttur. KR er í öðru sæti eftir sigurinn, með 26 stig eftir 14 umferðir.

Það var boðið upp á alvöru markaveislu í Keflavík í kvöld. KR fór heim með 3 stig eftir frábæran 1-5 sigur. Kara Guðmunds með þrennu og Rakel Grétarsdóttir með mark og 3 stoðsendingar. Skýr skilaboð frá Meistaravöllum. Takk.
— Livey (@liveyevents) August 18, 2026
Biðjumst velvirðingar á lýsandanum sem missti röddina… pic.twitter.com/m3FwtsxACd
Keflavík 1 - 5 KR
1-0 Rakel Inga Ágústsdóttir ('4 )
1-1 Kara Guðmundsdóttir ('24 )
1-2 Kara Guðmundsdóttir ('28 )
1-3 Kara Guðmundsdóttir ('43 )
1-4 Valgerður Gríma Sigurjónsdóttir ('90 )
1-5 Rakel Grétarsdóttir ('90 )
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Grótta | 14 | +22 | 32 |
| 2 | KR | 14 | +17 | 26 |
| 3 | Haukar | 14 | 0 | 24 |
| 4 | Selfoss | 14 | +7 | 23 |
| 5 | HK | 14 | +5 | 23 |
| 6 | ÍA | 14 | +7 | 21 |
| 7 | FHL | 14 | 0 | 18 |
| 8 | Keflavík | 14 | +5 | 17 |
| 9 | Völsungur | 14 | -5 | 12 |
| 10 | Tindastóll | 14 | -58 | 3 |