Fotbolti.net
19.08.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Everton reynir við Diao og Geertruida

Moyes vill breikka hópinn

Everton reynir við Diao og Geertruida
Canon

Mynd: EPA

David Moyes þjálfari Everton telur að félagið þurfi að styrkja leikmannahópinn með nokkrum leikmönnum til viðbótar fyrir upphafsflaut nýs deildartímabils á Englandi.
Moyes: Við þurfum fleiri leikmenn
TENGT EFNI

Moyes: Við þurfum fleiri leikmenn

Everton er því orðað við ýmsa leikmenn og segir Fabrizio Romano að Assane Diao og Lutsharel Geertruida séu ofarlega á óskalistanum.

Diao er tvítugur kantmaður Como á Ítalíu sem hefur skorað 10 mörk í 32 leikjum á einu og hálfu ári í Serie A. Hann er búinn að ryðja sér leið inn í sterkan landsliðshóp Senegal og vill Como halda leikmanninum innan sinna raða.

Everton er reiðubúið til að bjóða um 30 til 40 milljónir evra fyrir Diao, en talið er að Como sé ekki tilbúið að selja hann fyrir minna en 40 til 50 milljónir.

Geertruida er fjölhæfur varnarmaður sem stóð sig vel á láni hjá Sunderland á síðustu leiktíð. Hann er hægri bakvörður að upplagi en getur leyst ýmsar aðrar stöður í varnarlínunni og aftarlega á miðjunni.

Hann er 26 ára landsliðsmaður Hollands, með þrjú ár eftir af samningi við RB Leipzig.

Það er mikil barátta um Geertruida þar sem Real Sociedad og PSV Eindhoven eru einnig með í kapphlaupinu.
Everton reynir við Diao og Geertruida
Canon

Mynd: EPA

Everton reynir við Diao og Geertruida
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.