Fotbolti.net
19.08.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson

Ísland í dag - Spennandi lokametrar í neðri deildum

Aðeins eitt lið í 3. deild sem siglir lygnan sjó

Ísland í dag - Spennandi lokametrar í neðri deildum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það eru aðeins fimm umferðir eftir af deildartímabilinu í 2. og 3. deildum karla.
Átjánda umferð tímabilsins fer fram í kvöld og mæta öll liðin til leiks. Í 2. deildinni eru sex leikir sem fara fram á sama tíma enda er spennandi barátta framundan.

Haukar eru í frábærri stöðu á toppi deildarinnar með sex stiga forystu á Selfoss og geta farið langleiðina með að tryggja sér sæti í Lengjudeildinni með sigri gegn Kormáki/Hvöt er liðin mætast á Blönduósi.

Selfoss getur að sama skapi komið sér í afar þægilega stöðu með sigri gegn Kára, en þrjú stig skilja að á milli liðanna í toppbaráttunni.

Í fallbaráttunni eigast Hvíti riddarinn og KFG við í gríðarlega mikilvægum slag.

Í þriðju deild er talsvert meiri samkeppni. Fjögur lið eru að berjast um tvö efstu sætin á meðan sjö lið eiga enn möguleika á því að falla. KV er því eina liðið í allri 3. deildinni sem siglir lygnan sjó með fimm umferðir eftir óspilaðar.

2. deild karla
18:00 Hvíti riddarinn-KFG (Malbikstöðin að Varmá)
18:00 Fjölnir-KFA (Extra völlurinn)
18:00 Selfoss-Kári (JÁVERK-völlurinn)
18:00 Víkingur Ó.-Þróttur V. (Ólafsvíkurvöllur)
18:00 Dalvík/Reynir-Magni (Dalvíkurvöllur)
18:00 Kormákur/Hvöt-Haukar (Blönduósvöllur)

3. deild karla
18:00 Reynir S.-KH (Brons völlurinn)
18:00 Höttur-Sindri (Rafey-völlurinn)
18:00 Árbær-Víðir (Fagrilundur - gervigras)
18:00 KF-Tindastóll (Ólafsfjarðarvöllur)
19:15 KV-Augnablik (KR-völlur)
19:15 KÁ-Ýmir (BIRTU völlurinn)
Ísland í dag - Spennandi lokametrar í neðri deildum
Canon

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Ísland í dag - Spennandi lokametrar í neðri deildum
Canon

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Haukar17+2138
2Selfoss17+932
3Kári17+1829
4Fjölnir17+425
5Víkingur Ó.17-525
6Kormákur/Hvöt17+1024
7Dalvík/Reynir17-321
8Magni17-1221
9KFA17+320
10Þróttur V.17-519
11Hvíti riddarinn17-1116
12KFG17-2913
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.