19.08.26 - 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Martröð Nunez senn á enda

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Darwin Nunez virðist vera að yfirgefa Al Hilal í Sádi-Arabíu eftir eitt ár hjá félaginu. Nunez var keyptur til Al-Hilal frá Liverpool síðasta sumar og skoraði sex mörk í 16 leikjum fyrri hluta tímabils.
Hann var svo settur í frystikistuna, var ekki skráður í leikmannahópinn seinni hluta síðasta tímabils eftir að Karim Benzema kom til félagsins.
Nú er Al-Hilal að reyna fá inn annan framherja og hefur boðið í Ollie Watkins hjá Aston Villa. Þá þykir líklegt að Nunez fari frá félaginu

Diriyah, sem er líka í úrvalsdeildinni í Sádi-Arabíu, vill fá Úrúgvæjann á láni. Trabzonspor hefur einnig sýnt Nunez áhuga, en fyrrum liðsfélagi Nunez, Mo Salah, gekk í raðir félagsins fyrr í sumar.
Framtíð Karim Benzema hjá Al-Hilal er líka í óvissu.
Framtíð Karim Benzema hjá Al-Hilal er líka í óvissu.