19.08.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Meistaradeildin í dag - Willum mætir norska stórveldinu
Atlético Madrid spilar við Málaga í spænska boltanum

Mynd: NEC Nijmegen

Mynd: EPA

Mynd: NEC Nijmegen
Íslendingalið NEC Nijmegen er meðal félagsliða sem eru að berjast um að tryggja sér þátttöku í deildarkeppni Meistaradeildarinnar og mæta til leiks í umspilsleikjum í kvöld.
Nijmegen tekur á móti Bodö/Glimt frá Noregi í erfiðum slag en Willum Þór Willumsson er samningsbundinn Nijmegen næstu tvö árin.
Skotlandsmeistarar Celtic eiga þá heimaleik við LASK Linz á meðan Hapoel Be'er Sheva, sem sló Víking R. afar naumlega úr leik í forkeppninni, spilar við Sabah Baku frá Aserbaídsjan.
Slovan Bratislava spilar að lokum við NK Celje þar sem sterkustu félagsliðin frá Slóvakíu og Slóveníu mætast.
Til gamans má geta að Atlético Madrid tekur á sama tíma á móti nýliðum Málaga í efstu deild spænska boltans.
Meistaradeildin
19:00 Celtic - LASK Linz
19:00 Hapoel Beer Sheva - Sabah FK
19:00 Nijmegen - Bodö/Glimt
19:00 Slovan - Celje
Spánn: La Liga
19:00 Atletico Madrid - Malaga