Fotbolti.net
19.08.26 - 10:07
Kári Snorrason

Sjáðu glæsimörkin þrjú í Lengjudeildinni - „Hljómar betur þegar ég segi frá því“

„Hljómar betur þegar ég segi frá því heldur en það var.“

„Hljómar betur þegar ég segi frá því heldur en það var.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin
Þrjú mörk úr efstu hillu voru skoruð í nýlokinni 19. umferð í Lengjudeildinni. Livey, rétthafi Lengjudeildarinnar, hefur birt mörkin þrjú og má sjá þau hér að neðan.
Horfðu á Lengjudeildarmörkin - Farið yfir leikina í síðustu viku
TENGT EFNI

Horfðu á Lengjudeildarmörkin - Farið yfir leikina í síðustu viku

Kári Steinn Hlífarsson skoraði með skoti frá miðjuboganum í stórsigri Leiknis gegn Ægi.

„Mér datt í hug að skjóta því markmaðurinn var staðsettur langt frá markinu. Fannst ég hitta boltann nokkuð vel en þetta var samt alveg skrýtið mark sem hljómar betur þegar ég segi frá því heldur en það var. Fær annars Axel Freyr ekki örugglega frétt fyrir þrennuna sína líka?,“ sagði Kári léttur í samtali við Fótbolta.net aðspurður um markið.

Þá skoraði Sigurður Egill Lárusson frábært mark í stórleik Þróttar gegn Fylki í Laugardalnum.

Sigurður var að snúa aftur eftir meiðsli, „Hann byrjaði á því að stimpla sig inn með því að kontra hann í skeytinn,“ sagði Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar, í viðtali eftir leik.

Þá skoraði Breki Hólm Baldursson huggulegt mark gegn Aftureldingu á Malbikstöðinni að Varmá.

„Breki fær boltann langt fyrir utan teig, enginn Mosfellingur sem mætir. Hann leggur boltann fyrir sig og klínir honum í samskeytin fjær! Alvöru mark í fyrsta byrjunarliðsleiknum fyrir HK,“ segir í textalýsingu leiksins en Breki kom til HK á láni frá KA í sumarglugganum.
„Fær Axel Freyr ekki örugglega frétt fyrir þrennuna sína?“

„Fær Axel Freyr ekki örugglega frétt fyrir þrennuna sína?“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Sneri aftur með hvelli.

Sneri aftur með hvelli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttarar eru á toppi deildarinnar.

Þróttarar eru á toppi deildarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Venni var ánægður með Sigurð Egil að leik loknum.

Venni var ánægður með Sigurð Egil að leik loknum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

HK er í fjórða sæti.

HK er í fjórða sæti.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Frábært mark í fyrsta byrjunarliðsleiknum fyrir HK.

Frábært mark í fyrsta byrjunarliðsleiknum fyrir HK.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.19+4448
2KR19+2540
3Fram19+1340
4Breiðablik19+630
5ÍA19-425
6Keflavík19-425
7Valur19-523
8Stjarnan19-1221
9ÍBV19-1117
10FH19-1217
11KA19-1216
12Þór19-2815
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.