19.08.26 - 10:00
Ívan Guðjón Baldursson
Getafe í viðræðum um miðjumann Liverpool
Sýndi flotta takta fyrir þremur árum

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Spænska félagið Getafe er í viðræðum við enska stórveldið Liverpool um félagaskipti fyrir miðjumanninn varnarsinnaða Stefan Bajcetic.

TENGT EFNI
Barcelona þurfti að hætta við Bajcetic
Bajcetic er aðeins með eitt ár eftir af samningi við Liverpool. Hann verður 22 ára gamall í október og hefur verið hjá félaginu síðustu sex ár.
Hann þótti afar efnilegur og fékk að spila 19 leiki undir stjórn Jürgen Klopp tímabilið 2022-23 en hefur fengið afar lítið af tækifærum síðan þá.
Bajcetic var lánaður til Red Bull Salzburg og Las Palmas en mistókst að hrífa þjálfarateymin þar.
Talið er að Getafe muni borga lítið sem ekkert fyrir miðjumanninn og mun Liverpool halda stórum hluta af endursöluvirði leikmannsins.