Fotbolti.net
19.08.26 - 09:10
Fótbolti.net
Steypustöðin

Topp tíu - Oftast í Sterkasta liði umferðarinnar

Sterkasta lið umferðarinnar er í Bestu deildinni er birt hér á Fótbolta.net í hverri viku, í samstarfi við Steypustöðina. En hvaða leikmenn eru það sem skarað hafa fram úr og verið oftast valdir í liðið? Skoðum topp tíu.
<b>8 sinnum - Gylfi Þór Sigurðsson (Víkingur)</b> - Enginn hefur verið valinn oftar en Gylfi og það kemur líklega fáum á óvart. Hreinlega of góður fyrir Bestu deildina!

8 sinnum - Gylfi Þór Sigurðsson (Víkingur) - Enginn hefur verið valinn oftar en Gylfi og það kemur líklega fáum á óvart. Hreinlega of góður fyrir Bestu deildina!

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>8 sinnum - Aron Sigurðarson (KR)</b> - Skapar og skorar á færibandi. Fyrirliði KR er langmarkahæstur og þá er enginn með fleiri stoðsendingar.

8 sinnum - Aron Sigurðarson (KR) - Skapar og skorar á færibandi. Fyrirliði KR er langmarkahæstur og þá er enginn með fleiri stoðsendingar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>7 sinnum - Gunnar Vatnhamar (Víkingur)</b> - Sá færeyski er besti varnarmaður deildarinnar og hefur verið það síðustu ár. Verður ekki mikið oftar í liði umferðarinnar því hann heldur til Danmerkur eftir mánuðinn.

7 sinnum - Gunnar Vatnhamar (Víkingur) - Sá færeyski er besti varnarmaður deildarinnar og hefur verið það síðustu ár. Verður ekki mikið oftar í liði umferðarinnar því hann heldur til Danmerkur eftir mánuðinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>5 sinnum - Elías Már Ómarsson (Víkingur)</b> - Raðaði inn mörkum áður en hann sleit krossband. Skoraði tólf deildarmörk en verður ekki meira með á þessu ári.

5 sinnum - Elías Már Ómarsson (Víkingur) - Raðaði inn mörkum áður en hann sleit krossband. Skoraði tólf deildarmörk en verður ekki meira með á þessu ári.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>5 sinnum - Óskar Borgþórsson (Víkingur)</b> - Annar sem lék á als oddi áður en hann meiddist illa.

5 sinnum - Óskar Borgþórsson (Víkingur) - Annar sem lék á als oddi áður en hann meiddist illa.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>5 sinnum - Kennie Chopart (Fram)</b> - Fyrirliði Fram hefur verið hrikalega öflugur á báðum endum vallarins. Eldist betur en gott rauðvín.

5 sinnum - Kennie Chopart (Fram) - Fyrirliði Fram hefur verið hrikalega öflugur á báðum endum vallarins. Eldist betur en gott rauðvín.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>4 sinnum - Daníel Hafsteinsson (Víkingur)</b> - Þegar þessi frábæri miðjumaður er í gír þá eru Íslandsmeistararnir í gír.

4 sinnum - Daníel Hafsteinsson (Víkingur) - Þegar þessi frábæri miðjumaður er í gír þá eru Íslandsmeistararnir í gír.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>4 sinnum - Freyr Sigurðsson (Fram)</b> - Miðjumaðurinn ungi er í uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Fram og skyldi engan undra. Hlýtur að fara út í atvinnumennskuna eftir tímabilið.

4 sinnum - Freyr Sigurðsson (Fram) - Miðjumaðurinn ungi er í uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Fram og skyldi engan undra. Hlýtur að fara út í atvinnumennskuna eftir tímabilið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>4 sinnum - Markús Páll Ellertsson (ÍA)</b> - Þessi skemmtilegi sóknarmaður er kominn með tíu mörk. Þó Skagamenn hafa verið upp og niður hefur Markús átt feikilega öflugt tímabil.

4 sinnum - Markús Páll Ellertsson (ÍA) - Þessi skemmtilegi sóknarmaður er kominn með tíu mörk. Þó Skagamenn hafa verið upp og niður hefur Markús átt feikilega öflugt tímabil.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>4 sinnum - Tryggvi Hrafn Haraldsson (Valur)</b> - Besti leikmaður Vals er einnig á lista. Stuðningsmenn ÍA fá vatn í munninn við tilhugsunina um að hann sé á heimleið.

4 sinnum - Tryggvi Hrafn Haraldsson (Valur) - Besti leikmaður Vals er einnig á lista. Stuðningsmenn ÍA fá vatn í munninn við tilhugsunina um að hann sé á heimleið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Sölvi Geir Ottesen (Víkingur)</b> - Hefur fjórum sinnum verið þjálfari umferðarinnar.

Sölvi Geir Ottesen (Víkingur) - Hefur fjórum sinnum verið þjálfari umferðarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Óskar Hrafn Þorvaldsson (KR)</b> - Hefur einnig verið fjórum sinnum þjálfari umferðarinnar, oftast ásamt Sölva.

Óskar Hrafn Þorvaldsson (KR) - Hefur einnig verið fjórum sinnum þjálfari umferðarinnar, oftast ásamt Sölva.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.