Fotbolti.net
19.08.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Vilja rifta við Arthur

Með eitt ár eftir af samningi

Vilja rifta við Arthur
Canon

Mynd: EPA

Ítalska stórveldið Juventus hefur boðið brasilíska miðjumanninum Arthur Melo að rifta samningi sínum við félagið einu ári fyrir samningslok.
Arthur Melo til Girona á láni (Staðfest)
TENGT EFNI

Arthur Melo til Girona á láni (Staðfest)

Arthur er 30 ára gamall og samdi við Juventus sumarið 2020 þegar hann kom í umdeildum skiptum við Barcelona þar sem Miralem Pjanic fór í hina áttina.

Arthur lék 63 leiki á tveimur fyrstu árunum hjá Juventus en hefur síðan þá leikið fyrir Fiorentina, Girona og Gremio á lánssamningum.

Miðjumaðurinn varnarsinnaði hefur verið byrði á launastrúktúr Juve síðustu ár en ekki er víst að hann samþykki að binda enda á samninginn, enda ómögulegt fyrir hann að fá sömu laun hjá öðru félagi á þessum tímapunkti ferilsins.

Arthur á 22 landsleiki að baki fyrir Brasilíu en hefur ekki leikið fyrir þjóð sína síðan 2022.
Vilja rifta við Arthur
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.