Brynjar Björn: Engin ástæða til að panikka
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, afplánaði í kvöld seinni leik sinn í tveggja leikja banni. Stjarnan vann 3-1 sigur gegn ÍA en Brynjar Björn Gunnarsson, aðstoðarmaður Rúnars, veitti fjölmiðlum viðtal eftir leikinn.
Evrópusætið er núna í höndum Stjörnumanna takist þeim að vinna þá leiki sem eftir eru.
„Við ætlum að klára þessa deild með stæl og mögulega ná Evrópusæti,\" segir Brynjar Björn.
ÍA komst yfir eftir aðeins þriggja mínútna leik.
„Það var engin ástæða til þess að panikka neitt. Það var nóg eftir af leiknum. Við komum okkur í ágætis spil og héldum því meira og minna út leikinn.\"
Hilmar Árni Halldórsson hefur reynst Stjörnunni ansi drjúgur í sumar.
„Hann er með frábærar spyrnur og við höfum æft þetta vel. Við treystum á í okkar leik að fá mörk úr hornum og aukaspyrnum,\" segir Brynjar.
Viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.