Fotbolti.net
19.09.26 - 14:08
Brynjar Ingi Erluson

Adam og Lúkas héldu hreinu

Lúkas var að halda hreinu í annað sinn á tímabilinu

Lúkas var að halda hreinu í annað sinn á tímabilinu

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Markverðirnir Adam Ingi Benediktsson og Lúkas Petersson héldu báðir hreinu í Evrópuboltanum í dag.
Adam var í marki danska B-deildarliðsins AB sem vann 3-0 heimasigur á Esbjerg.

Sigurinn var kærkominn fyrir AB sem hafði ekki unnið deildarleik í rúman mánuð. Liðið er í 7. sæti deildarinnar með níu stig.

Ingimar Arnar Kristjánsson kom inn af bekknum hjá Aarhus Fremad sem tapaði 3-1 fyrir Hvidovre í dönsku B-deildinni. Ólafur Hjaltason kom ekki við sögu hjá Fremad sem er í 4. sæti með 13 stig.

Lúkas var þá í marki varaliðs Hoffenheim sem marði 1-0 sigur á Meppen í C-deildinni í Þýskalandi. Þetta var í annað sinn á tímabilinu sem hann heldur hreinu í deildinni, en Hoffenheim hefur byrjað tímabilið frábærlega og er í 3. sæti með 13 stig.

Ísak Andri Sigurgeirsson kom inn af bekknum hjá Norrköping sem vann 3-1 sigur á Öster í B-deildinni í Svíþjóð. Norrköping er með 55 stig og gæti mögulega komið sér aftur upp í efstu deild með sigri í næstu umferð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.