Fotbolti.net
19.09.26 - 16:05
Brynjar Ingi Erluson

Víkingur er Íslandsmeistari árið 2026

Helgi Guðjóns fagnar jöfnunarmarkinu og skoraði Stígur Diljan síðan sigurmarkið þegar tuttugu mínútur voru eftir

Helgi Guðjóns fagnar jöfnunarmarkinu og skoraði Stígur Diljan síðan sigurmarkið þegar tuttugu mínútur voru eftir

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR 1 - 2 Víkingur R.
1-0 Galdur Guðmundsson ('10 )
1-1 Helgi Guðjónsson ('34 , víti)
1-2 Stígur Diljan Þórðarson ('71 )
Rautt spjald:Daníel Hafsteinsson, Víkingur R. ('89)Sveinn Margeir Hauksson, Víkingur R. ('90)Aron Baldvin Þórðarson, Víkingur R. ('90)Hajrudin Cardaklija , Víkingur R. ('90)Hrafn Tómasson, KR ('90) Lestu um leikinn
Víkingur er Íslandsmeistari í áttunda sinn í sögu félagsins eftir 2-1 sigur á KR á Meistaravöllum í dag. Stígur Diljan Þórðarson skoraði sigurmarkið um miðbik síðari hálfleiks og tryggði Víkingum titilinn. Fimm rauð spjöld fóru á lofti undir lok leiks í mikilli dramatík og spennu.

Víkingar voru sentimetrum frá því að komast yfir á 7. mínútu þegar Aron Elís Þrándarson átti flugskalla í stöngina eftir fyrirgjöf Karls Friðleifs Gunnarssonar.

KR-ingar refsuðu aðeins þremur mínútum síðar. Karl Friðleifur tapaði boltanum og vildu Víkingar fá aukaspyrnu, en fengu ekki. Galdur Guðmundsson keyrði að marki, plataði Oliver Ekroth upp úr skónum og lagði boltann í nærhornið.

Gestirnir jöfnuðu eftir rúman hálftíma. Arnar Freyr Ólafsson, markvörður KR, rauk út í Karl Friðleif og vítaspyrna var dæmd. Helgi Guðjónsson fór á punktinn og skoraði af öryggi.

Fyrri hálfleikurinn var fjörugur og bæði lið sköpuðu sér færi, en staðan var jöfn í leikhléi og nóg átti eftir að gerast.

Víkingar voru hársbreidd frá því að taka forystuna þegar tæpur hálftími var til leiksloka. Hrannar Snær Magnússon fékk boltann hægra megin og lyfti honum yfir Arnar Frey, en boltinn fór í slána. Arnór Ingvi Traustason kom síðan á fleygiferð og tæklaði bæði mennina og boltann frá. Svakaleg björgun hjá Arnóri.

Það var vitað fyrir leik að Víkingur þyrfti sigur til að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn og gestirnir ætluðu sér greinilega að ganga frá dæminu.

Akoto tapaði boltanum og Stígur Diljan var fyrstur á hann. Hann tók eina snertingu, slapp einn í gegn og kláraði færið af öryggi. Markið reyndist sigurmarkið og tryggði Víkingum Íslandsmeistaratitilinn.

Víkingar voru líklegri til að bæta við á lokamínútunum og þá sá Daníel Hafsteinsson sitt annað gula spjald og þar með rautt þegar hann keyrði í bakið á Hrafni Tómassyni.

Undir lokin fékk Sveinn Margeir Hauksson, leikmaður Víkings, svo beint rautt spjald fyrir groddalega tæklingu þegar hann fór hátt með löppina. Dómurinn virtist þó umdeildur þegar atvikið var skoðað í endursýningu. Aron Baldvin Þórðarson, aðstoðarþjálfari Víkings, sá einnig rautt á hliðarlínunni eftir að hafa orðið æfur yfir atvikinu og Hajrudin Cardaklija, markmannsþjálfari liðsins.

Hrafn fékk síðan rautt í liði KR á lokasekúndum leiksins fyrir pirringsbrot. Alvöru dramatík og læti í Vesturbænum.

Reiðin rann þó fljótt af Víkingum þegar flautað var til leiksloka enda meistaratitillinn í höfn.

Þetta er annað árið í röð sem Víkingur vinnur titilinn og félagið hefur verið algjört yfirburðalið í íslenskum fótbolta undanfarin ár. Þetta var áttundi Íslandsmeistaratitill félagsins og er Víkingur þar með kominn með jafnmarga og FH.

KR var lengst af í titilbaráttunni við Víking eftir erfitt síðasta sumar og verður árangur liðsins að teljast magnaður. Framfarirnar hafa verið gríðarlegar og þetta gæti vel verið byrjunin á einhverju stóru í Vesturbænum, þó enn sé nokkuð í land að ná Víkingum.
Úr leiknum í dag

Úr leiknum í dag

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Víkingur er Íslandsmeistari árið 2026</b>
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.24+5059
2KR24+2847
3Fram23+1245
4Breiðablik23+433
5ÍA23-630
6Keflavík23-828
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.