19.09.26 - 15:19
Helgi Inguson
Byrjunarliðin í 100 milljóna króna leiknum: Heimir gerir tvær breytingar

Sigurvegarinn tryggir sér sæti í Bestu deildinni og hlýtur jafnframt þennan glæsilega bikar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurvegarinn tryggir sér sæti í Bestu deildinni og hlýtur jafnframt þennan glæsilega bikar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úrslitaleikur umspils Lengjudeildarinnar hefst eftir tæplega klukkustund, þegar Þróttur R. og Fylkir etja kappi á Laugardalsvelli. Búið er að opinbera byrjunarliðin í 100 milljóna króna leiknum, eins og hann hefur verið kallaður.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 0 - 0 Fylkir
Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar, stillir upp óbreyttu byrjunarliði frá 2-1 sigri gegn Njarðvík í síðasta leik. Njörður Þórhallsson, sem fór meiddur af velli í leiknum, er heill og er í byrjunarliðinu í dag.
Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis, gerir tvær breytingu á sínu liði frá 2-2 jafntefli gegn HK í framlengdum leik síðastliðinn sunnudag.
Arnór Snær Guðbjörnsson lét reka sig af velli í leiknum og er því fjarri góðu gamni í dag. Þá fær Magnús Daði Ottesen sér sæti á bekknum. Inn í liðið koma þeir Máni Austmann Hilmarsson og Nikulás Val Gunnarsson.

Byrjunarlið Þróttur R.
- 1. Þórhallur Ísak Guðmundsson (m)
- 2. Eiríkur Þorsteinsson Blöndal
- 3. Stefán Þórður Stefánsson
- 4. Njörður Þórhallsson
- 8. Baldur Hannes Stefánsson (f)
- 10. Sigurður Egill Lárusson
- 21. Brynjar Gautur Harðarson
- 22. Kári Kristjánsson
- 25. Hlynur Þórhallsson
- 27. Örn Bragi Hinriksson
- 32. Aron Snær Ingason
Byrjunarlið Fylkir
- 1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
- 3. Arnór Breki Ásþórsson (f)
- 4. Hlynur Sævar Jónsson
- 6. Guðfinnur Þór Leósson
- 7. Máni Austmann Hilmarsson
- 17. Birkir Eyþórsson
- 18. Nikulás Val Gunnarsson
- 20. Theodór Ingi Óskarsson
- 70. Guðmundur Tyrfingsson
- 77. Bjarki Steinsen Arnarsson
- 92. Kári Sigfússon