Fotbolti.net
19.09.26 - 14:00
Brynjar Ingi Erluson

Championship: Skoraði og sá rautt eftir að hafa fórnað sér fyrir liðið

Mohamadou Kante skoraði og fékk síðan rautt er leikmaður Millwall slapp í gegn undir lokin

Mohamadou Kante skoraði og fékk síðan rautt er leikmaður Millwall slapp í gegn undir lokin

Canon

Mynd: EPA

Þremur leikjum í 8. umferð ensku B-deildarinnar var að ljúka.
Stoke City vann frækinn 2-1 endurkomusigur á Sheffield United.
Kalvin Phillips, sem kom aftur til Sheffield á láni frá Manchester City í sumar, kom gestunum yfir á 51. mínútu en þeir glutruðu forystunni niður á lokakaflanum.

Jack McGlynn jafnaði á 78. mínútu og Sam Gallagher skoraði sigurmarkið átta mínútum síðar. Stoke er í 5. sæti með 13 stig en Sheffield United í 15. sæti með níu stig.

West Ham kom sömuleiðis til baka eftir að hafa lent 2-0 undir gegn Millwall og tryggði sér 2-2 jafntefli.

Caleb Taylor og Camiel Neghli komu Millwall í tveggja marka forystu í fyrri hálfleik en Hamrarnir svöruðu með tveimur mörkum á sex mínútna kafla í þeim síðari. Mohamadou Kante minnkaði muninn á 74. mínútu og Kostas Mavropanos jafnaði sex mínútum síðar.

Kante sá svo beint rautt spjald undir lok leiks þegar hann fórnaði sér fyrir liðið. Framherji Millwall var sloppinn í gegn en Kante hljóp hann uppi og reif hann niður rétt fyrir utan teiginn.

Jafntefli varð niðurstaðan og West Ham situr á toppnum með 15 stig en Millwall er í 10. sæti með 11 stig.

Cardiff City 3 - 1 Charlton Athletic
1-0 Jack Moylan ('8 )
2-0 Yousef Salech ('24 )
2-1 Tyreece Campbell ('29 )
3-1 Jack Moylan ('61 )

Millwall 2 - 2 West Ham
1-0 Caleb Taylor ('16 )
2-0 Camiel Neghli ('45 )
2-1 Mohamadou Kante ('74 )
2-2 Konstantinos Mavropanos ('80 )
Rautt spjald: Mohamadou Kante, West Ham ('89)

Stoke City 2 - 1 Sheffield Utd
0-1 Kalvin Phillips ('51 )
1-1 Jack McGlynn ('78 )
2-1 Sam Gallagher ('86 )

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Swansea10+923
2Middlesbrough10+621
3Birmingham10+617
4West Brom10+217
5West Ham9+1116
6Stoke City10+116
7Blackburn10+215
8QPR9+314
9Wolves9+214
10Millwall10014
11Bristol City10-214
12Charlton Athletic10-314
13Southampton9+1013
14Bolton10-313
15Sheffield Utd9+112
16Wrexham10-411
17Lincoln City9-411
18Cardiff City10+110
19Norwich9-29
20Portsmouth8-28
21Burnley10-48
22Watford10-118
23Derby County9-76
24Preston NE10-124
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.