Fotbolti.net
19.09.26 - 16:14
Brynjar Ingi Erluson

Championship: Unnu Southampton sólarhring eftir að hafa gert grín að þeim

Wrexham vann Southampton, 2-1

Wrexham vann Southampton, 2-1

Canon

Mynd: EPA

Wrexham vann 2-1 sigur á Southampton í ensku B-deildinni í dag, aðeins sólarhring eftir að eigendur velska félagsins höfðu gert grín að Southampton í myndbandi á samfélagsmiðlum.
Hollywood-leikararnir gerðu grín að keppinautum sínum
TENGT EFNI

Hollywood-leikararnir gerðu grín að keppinautum sínum

Hollywood-leikararnir og eigendur Wrexham, Ryan Reynolds og Rob McElhenney, gerðu skemmtilegt grín að Southampton þegar þeir kynntu að Firefox yrði aðalstyrktaraðili félagsins og prýddi framhlið treyjanna.

Þar var vísað í njósnamálið sem Southampton lenti í á síðustu leiktíð og varð til þess að liðið var dæmt úr leik í umspilinu um sæti í úrvalsdeildinni.

Leikmenn Wrexham nudduðu síðan enn meira salti í sárin með því að vinna Southampton í dag.

Kieffer Moore kom Wrexham yfir áður en James Ward-Prowse jafnaði metin.

Undir lok leiks varð Keven Schlotterbeck fyrir því óláni að setja boltann í eigið net og tryggði það Wrexham sigurinn. Liðin eru þar með jöfn að stigum með tíu stig eftir átta umferðir.

Andri Lucas Guðjohnsen kom inn af bekknum í 2-2 jafntefli Blackburn Rovers gegn Portsmouth. Blackburn er með níu stig í 16. sæti.

Swansea komst þá á toppinn með 2-1 sigri á nýliðum Lincoln City.

Benoný Breki Andrésson fékk nokkrar mínútur í markalausu jafntefli Stockport County gegn Sheffield Wednesday í ensku C-deildinni. Stockport er í 9. sæti með 10 stig.

Birmingham 2 - 2 Middlesbrough
0-1 Maximilian Arfsten ('45 )
1-1 Liam Millar ('55 )
1-2 Riley McGree ('59 , sjálfsmark)
1-3 Adilson Malanda ('88 )

Burnley 1 - 1 Derby County
1-0 Zeki Amdouni ('34 )
1-1 Mohammed Fuseini ('90 )

Lincoln City 1 - 2 Swansea
1-0 Reeco Hackett-Fairchild ('39 , víti)
1-1 Moussa Yeo ('47 )
1-2 Stephen Eustaquio ('51 )

Portsmouth 2 - 2 Blackburn
1-0 Zak Swanson ('4 )
1-1 Oladapo Afolayan ('11 )
1-2 Ryoya Morishita ('56 )
2-2 Colby Bishop ('74 )

Wrexham 2 - 1 Southampton
1-0 Kieffer Moore ('36 )
1-1 James Ward-Prowse ('50 )
2-1 Keven Schlotterbeck ('89 , sjálfsmark)
Andri Lucas kom inn af bekknum í jafntefli

Andri Lucas kom inn af bekknum í jafntefli

Canon

Mynd: Blackburn Rovers

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough17+1435
2Stoke City17+835
3Wolves17+1234
4Birmingham17+1532
5West Brom17+1032
6Southampton17+1628
7QPR17+728
8Swansea17+327
9Sheffield Utd17+626
10Portsmouth17+326
11Norwich17+925
12Blackburn17025
13West Ham17+1324
14Wrexham17-122
15Charlton Athletic17-720
16Bristol City17-1019
17Cardiff City17-518
18Millwall17-618
19Bolton17-1118
20Watford17-1515
21Lincoln City17-1615
22Preston NE17-1312
23Burnley17-1111
24Derby County17-2110
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.