Fotbolti.net
19.09.26 - 10:54
Brynjar Ingi Erluson

Chelsea fengið á sig flest mörk á árinu

Xabi Alonso hefur ekki tekist að laga lekann hjá Chelsea

Xabi Alonso hefur ekki tekist að laga lekann hjá Chelsea

Canon

Mynd: EPA

Chelsea tapaði fyrir Brentford, 3-0, í ensku úrvalsdeildinni í gær og kom sér þar með í toppsætið en þó ekki eftirsótt toppsæti.
Varnarleikur Chelsea hefur verið í molum í byrjun tímabilsins og raunar um nokkuð langt skeið.

Sóknarleikurinn hefur verið mun betri og er liðið með næstflest mörk í deildinni á tímabilinu, tíu talsins. Á móti hefur Chelsea fengið á sig flest mörk allra liða, eða tólf. Botnlið Coventry hefur á meðan fengið á sig tíu mörk.

Squawka tók saman hversu mörg deildarmörk liðin hafa fengið á sig á þessu ári og þar trónir Chelsea á toppnum með 43. Liðið hefur þar með tekið fram úr Crystal Palace, sem hefur fengið á sig 42 mörk.

Newcastle og Tottenham koma næst á eftir með 39 mörk, en Liverpool er í 10. sæti listans með 31 mark fengið á sig.

Listann í heild má sjá hér fyrir neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.