Fotbolti.net
19.09.26 - 19:24
Helgi Inguson

„Ég hélt að ég myndi fara að grenja"

Auglýsing
Kári Kristjánsson, miðjumaður Þróttar

Kári Kristjánsson, miðjumaður Þróttar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
„Tilfinning er helvíti góð," sagði Kári Kristjánsson, leikmaður Þróttar, eftir sigur gegn Fylki í úrslitaleik umspils Lengjudeildarinnar.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 - 0 Fylkir
„Mér fannst við vera helvíti góðir fyrstu 30 mínúturnar. Síðan kom smá skrekkur, við náðum ekki markinu og vorum smá hræddir við þá. Þetta var svo hörkuleikur í seinni og við náðum þessu mikilvæga fyrsta marki.

Ég man ekki eftir því að þeir hafi fengið færi. Við vorum með stjórn á leiknum en það var mjög erfitt að brjóta þá niður. Þeir lágu djúpt og færslurnar voru góðar hjá þeim,"
sagði Kári um leikinn.

Mikil fagnaðarlæti brutust út þegar Helgi Mikael flautaði til leiksloka, enda hefur Þróttur ekki leikið í efstu deild í 10 ár.

„Ég hélt að ég myndi fara að grenja en ég gerði það ekki, þannig að ég er stoltur af mér," sagði Kári þegar hann lýsti tilfinningunni þegar lokaflautið gall á.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.