Fotbolti.net
19.09.26 - 18:08
Sölvi Haraldsson

Einkunnir úr úrslitaleiknum: Aron skaut Þrótti í Bestu deildina

Einkunnir úr úrslitaleiknum: Aron skaut Þrótti í Bestu deildina
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin
Þróttarar unnu Fylki í úrslitaleik umspilsins í Lengjudeildinni og eru komnir í Bestu deildina. Hér koma einkunirnar úr þessum leik.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 - 0 Fylkir
Þróttur R.
1. Þórhallur Ísak Guðmundsson (m) - 7
Hélt hreinu og varði markið vel. Öruggur í sínum aðgerðum, var mjög mikilvægur í lokin þegar Fylkir kýldi boltann á teiginn, annars lítið að gera hjá honum.

2. Eiríkur Þorsteinsson Blöndal - 7
Skilaði sínu vel í dag og getur gengið stoltur frá borði.

3. Stefán Þórður Stefánsson - 6
Fannst Stefán oft á tíðum í smá veseni í dag en slapp samt sem áður frá þessu vel.

4. Njörður Þórhallsson - 7
Gerði sitt mjög vel, hélt hreinu og var öruggur.

8. Baldur Hannes Stefánsson (f) - 8
Fyrirliðinn frábær. Bæði á og án boltans, ómetanlegur í dag fyrir liðið.

10. Sigurður Egill Lárusson - 7
Kórónaði frábært sumar hjá sér með góðri frammistöðu. Hann skilaði sínu og kemur mjög vel út úr þessu.

21. Brynjar Gautur Harðarson - 8
Góður í dag. Síógnandi og duglegur. Fannst alltaf eitthvað gerast í kringum hann í þessum lokaða leik.

22. Kári Kristjánsson - 7
Kári alltaf hættulegur. Fylkismenn gerðu vel að einangra hann en það sást hversu góður hann er í fótbolta í dag og er mikilvægur fyrir Þróttarana.

25. Hlynur Þórhallsson - 7
Uppalinn og er að fara upp með liðinu sínu. Hélt hreinu og gerði þetta vel í dag.

27. Örn Bragi Hinriksson - 7
Örn flottur í dag. Var hættulegur fram á við og duglegur án boltans.

32. Aron Snær Ingason - 9
Besti maður vallarins. Skorar sigurmarkið og var í raun langhættulegasti maður Þróttar í dag. Stórkostlegur og óheppin að vera ekki búinn að skora áður en sigurmarkið kom.

Varamenn
Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson (64') - 6
Sást lítið til hans en gerði sitt bara vel og kemur vel út úr þessu.

Tryggvi Snær Geirsson (76') - 7
Spilar vissulega bara korter sem ætti að vera of lítið til að fá einkunn en hann býr til sigurmark Þróttar sem Aron skoraði og fær sjöu fyrir það.

Fylkir
1. Ólafur Kristófer Helgason (m) - 7
Varði markið vel í dag og sérstaklega í einni vörslu sinni á Aroni Snæ um miðjan seinni hálfleik. Lítið sem hann gat gert í marki Þróttar en heilt yfir góður.

3. Arnór Breki Ásþórsson (f) - 6
Fínn leikur hjá fyrirliðanum. Fannst vanta meiri gæði í fyrirgjafirnar þegar Fylkir komst í góðar stöður, varnarlega góður en eins og ég segi að þá vantaði meiri gæði fram á við.

4. Hlynur Sævar Jónsson - 5
Fannst smá skjálfti í honum til að byrja með eins og öðrum í Fylki en hann vann sig í leikinn. Öðru hvoru smá vesen á hafsentaparinu sem lækkar hann í 5. Fyrir utan það bara fínt.

6. Guðfinnur Þór Leósson - 5
Efiður leikur fyrir Guðfinn og varnarlínu Fylkis, það var mikið að gera hjá þeim í dag en á köflum ekki alveg nógu vel stilltir.

7. Máni Austmann Hilmarsson - 6
Fer útaf í seinni hálfleik. Sást lítið til hans nema í einu skoti hans í seinni hálfleik sem var sennilega besta færi Fylkis. Annars voru fyrirgjafirnar ekki góðar og lítið sem hann gat gert.

17. Birkir Eyþórsson - 6
Birkir var fínn í dag en lítið sem er hægt að nota til að hækka hann eða lækka í einkunn.

18. Nikulás Val Gunnarsson - 6
Lítið sem gerðist í kringum Nikulás. Var ekki góður og ekki lélegur einhvernveginn.

20. Theodór Ingi Óskarsson - 6
Kom lítið frá Tedda í dag sem fékk bara fyrri hálfleikinn til að sína sig.

70. Guðmundur Tyrfingsson - 6
Var duglegur án boltans en sást lítið til hans á boltanum.

77. Bjarki Steinsen Arnarsson - 6
Fór útaf í hálfleik fyrir Tuma og fékk lítinn tíma til að gera eitthvað en lét til sín taka og gerði lítið af mistökum.

92. Kári Sigfússon - 5
Lélegar fyrirgjafir og ekki mikil gæði sem við fengum frá Kára í dag sem Fylkismönnum sárvantaði í dag.

Varamenn
Tumi Fannar Gunnarsson (46') - 7
Var með skárri leikmönnum Fylkis í dag á báðum endum vallarins.

Benedikt Daríus Garðarsson (46') - 6
Kom lítið frá honum í dag en gerði ekkert illa heldur.

Magnús Daði Ottesen (76')
Spilaði of lítið til að fá einkunn.

Eyþór Aron Wöhler (82')
Spilaði of lítið til að fá einkunn.

Dómarinn - Helgi Mikael Jónasson: 7
Dæmdi þennan leik vel. Erfiður leikur að dæma en það fór lítið fyrir honum sem er jákvætt. Nelgdi þessar stóru ákvarðanir einnig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.