19.09.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - Spenna í London og meistararnir fara til Brighton

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það eru fimm leikir á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í dag og hefst fjörið í hádeginu þegar Tottenham Hotspur mætir Aston Villa í spennandi slag í London.
Bæði lið hafa farið hörmulega af stað á nýju tímabili. Tottenham er með tvö stig eftir fjórar umferðir, einu stigi meira en Aston Villa. Þá er Tottenham ekki enn búið að skora eitt einasta mark í deildinni en Villa er komið með eitt mark.
Roberto De Zerbi og Unai Emery þjálfarar liðanna eru mikils metnir en þurfa að fara að snúa slæmu gengi við sem fyrst.
Englandsmeistarar Arsenal eiga þá erfiðan útileik við Pascal Gross og félaga í skemmtilegu liði Brighton, sem er með 7 stig eftir 4 umferðir og leiðir markaskorun í deildinni. Lærlingar Fabian Hürzeler eru búnir að skora 13 mörk, þremur meira heldur en næstu lið Brentford og Chelsea sem eru bæði búin að spila einum leik meira.
Arsenal er með fullt hús stiga en gæti lent í vandræðum í dag.
Nýliðar Hull City eru enn taplausir en það gæti breyst þegar þeir heimsækja lærlinga Matthias Jaissle til Newcastle.
Leikir dagsins
11:30 Tottenham - Aston Villa
14:00 Brighton - Arsenal
14:00 Everton - Ipswich Town
14:00 Newcastle - Hull City
16:30 Nott. Forest - Coventry

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 4 | +7 | 12 |
| 2 | Man City | 4 | +6 | 12 |
| 3 | Brentford | 5 | +6 | 9 |
| 4 | Leeds | 4 | +4 | 8 |
| 5 | Hull City | 4 | +3 | 8 |
| 6 | Brighton | 4 | +8 | 7 |
| 7 | Chelsea | 5 | -2 | 7 |
| 8 | Liverpool | 4 | +2 | 6 |
| 9 | Everton | 4 | +2 | 6 |
| 10 | Ipswich Town | 4 | -3 | 6 |
| 11 | Nott. Forest | 4 | 0 | 5 |
| 12 | Newcastle | 4 | -1 | 5 |
| 13 | Man Utd | 4 | 0 | 4 |
| 14 | Sunderland | 4 | -2 | 4 |
| 15 | Bournemouth | 4 | -1 | 3 |
| 16 | Crystal Palace | 4 | -5 | 3 |
| 17 | Tottenham | 4 | -5 | 2 |
| 18 | Fulham | 4 | -3 | 1 |
| 19 | Aston Villa | 4 | -6 | 1 |
| 20 | Coventry | 4 | -10 | 0 |