Fotbolti.net
19.09.26 - 15:58
Brynjar Ingi Erluson

England: Meistararnir teknir í bakaríið í Brighton

Arsenal fékk skell í Brighton

Arsenal fékk skell í Brighton

Canon

Mynd: EPA

Brighton vann Englandsmeistara Arsenal með stæl, 3-0, sem var fyrsta tap meistaranna í deildinni síðan í apríl á síðustu leiktíð. Everton og Newcastle unnu bæði á heimavelli.
Englandsmeistararnir höfðu verið á miklu skriði, unnið alla fjóra deildarleiki sína á tímabilinu og ekki tapað í deildinni síðan í apríl.

Miðað við frammistöðuna í fyrstu leikjunum höfðu Arsenal-menn litið út eins og sannir meistarar, en skellurinn kom í dag.

Brighton var sterkari á flestum sviðum og stjórnaði miðsvæðinu. Arsenal skapaði sér lítið sem ekkert í fyrri hálfleiknum á meðan heimamenn skoruðu tvö góð mörk.

Pascal Gross kom Brighton yfir á 31. mínútu. Boltinn gekk vel á milli lína áður en Grikkinn Charalampos Kostoulas kom honum á Gross sem lét vaða fyrir utan teig. Skotið fór í stöngina og inn og David Raya var sigraður.

Kostoulas, sem er aðeins 19 ára, bætti öðru marki við í uppbótartíma fyrri hálfleiks, skömmu eftir að Bukayo Saka hafði klúðrað dauðafæri.

Diego Gomez keyrði fram völlinn og kom boltanum á Kostoulas sem lét vaða fyrir utan teig og þrumaði honum niður í vinstra hornið. Arsenal átti í miklum vandræðum með skotin fyrir utan teiginn.

Vandræðin héldu áfram í síðari hálfleik. Gross tók hornspyrnu á 57. mínútu og fann þar hinn stóra og stæðilega Chema Andres sem stangaði boltann í netið. Hinn nýi Rodri var farinn að láta til sín taka og meistararnir komnir í veruleg vandræði.

Brighton-menn gátu bætt við fjórða markinu undir lokin, en Raya varði frábærlega og fór síðan frákastið í tréverkið.

Arsenal náði sér aldrei almennilega á strik og fögnuðu Brighton-menn verðskulduðum sigri í leikslok. Arsenal fellur niður í annað sætið á markatölu en er áfram með 12 stig, á meðan Brighton er í þriðja sæti með tíu stig.

Newcastle fyrsta liðið til að vinna Hull

Newcastle fékk draumabyrjun gegn Hull með tveimur mörkum á fyrstu sjö mínútunum.

Joe Willock skoraði eftir undirbúning Harvey Barnes sem lagði síðan upp annað markið fyrir bakvörðinn Lewis Hall aðeins nokkrum mínútum síðar.

Newcastle fékk gullið tækifæri til að gera út um leikinn undir lok fyrri hálfleiks þegar Sorba Thomas braut á Jacob Murphy. Yoane Wissa fór á punktinn en Kostas Tzolakis varði spyrnuna.

Mohamed-Ali Cho minnkaði muninn fyrir Hull í síðari hálfleik en nær komust gestirnir ekki. Þetta var fyrsta tap Hull á tímabilinu og annar sigur Newcastle. Bæði lið eru með átta stig eftir fimm umferðir.

Barry hetjan hjá Everton

Everton var ekki lengi að koma sér yfir gegn Ipswich en það gerði sjóðheitur Thierno Barry á 11. mínútu.

James Tarkowski mætti hreinsun fyrir utan teiginn og hamraði boltann að marki. Hann fór af Barry og lak í netið. Ipswich-menn kölluðu eftir rangstöðu en Barry var réttstæður og markið stóð.

Everton taldi sig síðan hafa bætt öðru marki við þegar Barry skallaði boltann í netið, en það var dæmt af fyrir litlar sakir þar sem Brennan Johnson virtist aðeins koma við markvörð Ipswich í aðdragandanum.

Nýliðarnir urðu manni færri á 67. mínútu þegar Issahaku Fatawu fékk sitt annað gula spjald fyrir dýfu. Klaufalegt hjá Ganamanninum sem kom sínum mönnum í erfiða stöðu.

Everton hélt forystunni til loka og tryggði sér sigurinn. Liðið er komið upp í fimmta sæti með níu stig en Ipswich er í 11. sæti með sex stig.

Brighton 3 - 0 Arsenal
1-0 Pascal Gross ('31 )
2-0 Charalampos Kostoulas ('45 )
3-0 Chema Andres ('57 )

Everton 1 - 0 Ipswich Town
1-0 Thierno Barry ('11 )
Rautt spjald: Issahaku Fatawu, Ipswich Town ('67)

Newcastle 2 - 1 Hull City
1-0 Joseph Willock ('3 )
2-0 Lewis Hall ('7 )
2-0 Yoane Wissa ('45 , Misnotað víti)
2-1 Mohamed-Ali Cho ('67 )
Charalampos Koustoulas skoraði og lagði upp

Charalampos Koustoulas skoraði og lagði upp

Canon

Mynd: EPA

Pascal Gross skoraði flott mark og átti hornspyrnuna í þriðja markinu

Pascal Gross skoraði flott mark og átti hornspyrnuna í þriðja markinu

Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City4+612
2Arsenal5+412
3Brighton5+1110
4Brentford5+69
5Everton5+39
6Leeds4+48
7Hull City5+28
8Newcastle508
9Chelsea5-27
10Liverpool4+26
11Ipswich Town5-46
12Nott. Forest405
13Man Utd404
14Sunderland4-24
15Aston Villa5-54
16Bournemouth4-13
17Crystal Palace4-53
18Tottenham5-62
19Fulham4-31
20Coventry4-100
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.