19.09.26 - 10:00
Ívan Guðjón Baldursson
Espí ánægður að vera varaskeifa: Ég er heppinn

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Real Madrid greiddi riftunarákvæðið í samningi Carlos Espí til að kaupa hann úr röðum Levante í sumar.

TENGT EFNI
Mourinho: Annað hvort drepum við leikinn eða hann okkur
Espí er 21 árs gamall og reyndist bjargvættur Levante á síðustu leiktíð eftir langa og harða fallbaráttu í La Liga.
Espí er þó ekki með byrjunarliðssæti hjá Real Madrid, enda er ofurstjarnan Kylian Mbappé fyrir framan hann í goggunarröðinni. Espí hefur verið að fá tækifæri inn af bekknum og er kominn með tvö mörk á um það bil hálftíma það sem af er tímabils.
Hann reyndist hetjan strax í fyrstu umferð deildartímabilsins þegar hann kom inn af bekknum til að skora sigurmarkið gegn Espanyol og var svo aftur hetjan í síðustu umferð þegar hann kom inn og skoraði sigurmarkið gegn Elche.
„Ég er hamingjusamasti maður í heimi," sagði Espí eftir að hafa skorað gegn Elche. „Ég er heppinn. Það er sturlað að horfa á Kylian Mbappé spila fótbolta. Hann er ótrúlegur, bæði á æfingum og í leikjum."
José Mourinho tjáði sig einnig um Espí eftir leikslok.
„Ég er ánægður með Espí, hann er hungraður og metnaðarfullur. Hann veit að hann er til vara fyrir fótboltamann sem er langt frá því að vera eðlilegur. Það væri mjög erfitt að láta þá byrja leiki saman í 4-4-2 leikkerfi," sagði Mourinho.
Mbappé er hrifinn af samherja sínum og spáir mikið af mörkum.
„Ég er að segja ykkur það, Carlos Espí mun skora mikið af mörkum. Hann er með virkilega gott innsæi."