19.09.26 - 09:30
Ívan Guðjón Baldursson
Fær sex ára samning hjá heimsmeisturunum

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Luis de la Fuente, landsliðsþjálfari heims- og Evrópumeistara Spánar, fær nýjan sex ára samning eftir að hafa náð mögnuðum árangri.
De la Fuente var ráðinn í desember 2022 eftir að Luis Enrique sagði af sér í kjölfar óvænts taps gegn Marokkó í 16-liða úrslitum á HM í Katar.
Eftir uppsögnina var Enrique ráðinn til Paris Saint-Germain og hefur gert stórkostlega hluti við stjórnvölinn þar, engu síðri heldur en afrekin sem samlandi hans hefur unnið við stjórnvölinn hjá Spáni.
De la Fuente hefur starfað sem þjálfari hjá spænska landsliðinu í meira en áratug og eru Spánverjar gríðarlega ánægðir með sinn mann. Hann elskar lífið sem landsliðsþjálfari og má búast við tilkynningu um nýjan samning á næstu dögum.