Fotbolti.net
19.09.26 - 16:36
Brynjar Ingi Erluson

Fjórði sigurinn í röð hjá Freysa - Hjörtur og Kolbeinn á skriði

Freysi og lærisveinar hans ætla sér í Evrópukeppni

Freysi og lærisveinar hans ætla sér í Evrópukeppni

Canon

Mynd: Rosenborg

Freyr Alexandersson heldur áfram að gera frábæra hluti með norska stórliðið Rosenborg, en liðið vann sinn fjórða leik í röð í öllum keppnum þegar það lagði Kristiansund, 3-1, í deildinni í dag.
Það tók Frey ekki langan tíma að snúa við slöku gengi Rosenborg, en hann tók við liðinu um mitt sumar eftir að hafa verið látinn fara frá Brann.

Síðan Freyr tók við hefur Rosenborg unnið sig úr baráttunni í neðri hlutanum og er nú farið að gera atlögu að Evrópusæti fyrir næstu leiktíð.

Í dag náði liðið í sinn áttunda deildarsigur undir stjórn Freys og jafnframt fjórða sigurinn í röð í deild og bikar.

Rosenborg er í 5. sæti með 33 stig, aðeins tveimur stigum frá Evrópusæti þegar níu umferðir eru eftir.

Júlíus Mar Júlíusson var í vörn Kristiansund sem er í 15. sæti með 19 stig.

Hjörtur Hermannsson og Kolbeinn Þórðarson halda svo áfram að njóta lífsins í Gautaborg.

Þeir fögnuðu 1-0 sigri á Brommapojkarna í sænsku úrvalsdeildinni í dag og var það fjórði deildarsigur liðsins í röð og sá fimmti í röð í öllum keppnum.

Hjörtur átti frábæran leik í vörn Gautaborgar og Kolbeinn kom inn af bekknum og hjálpaði liðinu að sigla sigrinum heim. Gautaborg er í 9. sæti með 32 stig og aðeins þremur stigum frá 4. sætinu.

Daníel Tristan Guðjohnsen byrjaði hjá Malmö sem tapaði 2-0 fyrir Västerås á útivelli. Malmö er í 6. sæti með 33 stig.

Davíð Kristján Ólafsson og félagar í Polonia Warszawa eru komnir aftur á sigurbraut í pólsku B-deildinni eftir 2-0 sigur á Chrobry Glogow. Polonia hafði ekki unnið deildarleik í mánuð fyrir þennan leik og því kærkominn sigur fyrir liðið.

Polonia er í 6. sæti með 14 stig eftir níu umferðir.

Eyþór Martin Björgólfsson fékk þá tækifærið af bekknum hjá Motherwell sem tapaði 2-1 fyrir Dundee í skosku úrvalsdeildinni. Motherwell hefur nú tapað þremur deildarleikjum í röð og er í 9. sæti með átta stig.
Hjörtur og Kolbeinn eru komnir á skrið

Hjörtur og Kolbeinn eru komnir á skrið

Canon

Mynd: Guðmundur Svansson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.