Fotbolti.net
19.09.26 - 14:46
Brynjar Ingi Erluson

Fyrrum aðstoðarmaður Nagelsmann verður þjálfari Stefáns

Sandro Wagner

Sandro Wagner

Canon

Mynd: EPA

Stefán Teitur Þórðarson, fyrirliði Hannover í Þýskalandi, er að fá nýjan þjálfara en Sandro Wagner hefur samþykkt tveggja ára samning við félagið.
Christian Titz var á dögunum rekinn frá Hannover eftir slaka byrjun liðsins á tímabilinu.

BILD greinir frá því að arftaki hans sé fundinn, en Sandro Wagner mun taka við liðinu og stýra því næstu tvö árin.

Wagner var áður aðstoðarmaður Julian Nagelsmann hjá þýska landsliðinu og hefur einnig stýrt Augsburg og Unterhaching. Hann átti sömuleiðis góðan leikmannaferil í Þýskalandi og lék meðal annars með Bayern München, Herthu Berlín og Werder Bremen.

Hannover er í 16. sæti B-deildarinnar með aðeins fjögur stig eftir fimm leiki, aðeins nokkrum mánuðum eftir að hafa verið nálægt því að komast upp í efstu deild.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.