Fotbolti.net
19.09.26 - 16:23
Brynjar Ingi Erluson

Glódís og Bayern áfram með fullt hús eftir sigur í Íslendingaslag - Diljá á skotskónum

Glódís Perla og Bayern ætla sér að verja skjöldinn fræga

Glódís Perla og Bayern ætla sér að verja skjöldinn fræga

Canon

Mynd: EPA

Kvennaboltinn
Glódís Perla Viggósdóttir og Bayern München eru með fullt hús stiga á toppi þýsku deildarinnar eftir 5-2 sigur á Söndru Maríu Jessen og stöllum hennar í Köln.
Fyrirliði landsliðsins var á sínum stað í vörn Bayern og Sandra lék í bakverðinum hjá Köln. Sædís Rún Heiðarsdóttir var hins vegar ekki í leikmannahópi Köln í dag.

Bayern komst í 3-0 forystu á fyrstu fimmtán mínútunum en Köln náði að minnka muninn með tveimur mörkum sitt hvoru megin við hálfleikinn. Bæjarar gerðu síðan endanlega út um leikinn með tveimur mörkum á þriggja mínútna kafla um miðbik síðari hálfleiks.

Bayern er með fullt hús stiga eftir fimm leiki en Köln er með níu stig í 4. sæti.

Diljá Ýr Zomers var á skotskónum með Brann sem vann 4-0 sigur á Bodö/Glimt.

Framherjinn byrjaði á bekknum en kom inn á þegar stundarfjórðungur var til leiksloka og skoraði fjórða og síðasta markið aðeins þremur mínútum síðar.

Brann er á toppnum með 44 stig, sjö stigum meira en Álasund sem er í öðru sæti.

Thelma Karen Pálmadóttir byrjaði hjá Häcken sem vann 3-0 sigur á Eskilstuna og er nú með fimm stiga forystu á toppi sænsku deildarinnar.

Heiða Ragney Viðarsdóttir var í liði Eskilstuna sem er í 6. sæti með 27 stig.

Eyrún Embla Hjartardóttir var, eins og venjulega, í byrjunarliði varaliðs Häcken sem tapaði 2-0 fyrir Trelleborg í B-deildinni. Varalið Häcken er á botninum með sjö stig.
Diljá Ýr skoraði fyrir Brann

Diljá Ýr skoraði fyrir Brann

Canon

Mynd: Brann

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.