19.09.26 - 19:12
Helgi Inguson
Heimir hrósar Venna - „Ekki margir sem hafa spilað svona stóran leik"
Auglýsing

Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fylkir og Þróttur áttust við í úrslitaleik umspils Lengjudeildarinnar á Laugardalsvelli. Þróttur bar sigur úr býtum en Fótbolti.net náði tali af Heimi Guðjónssyni, þjálfara Fylkis, eftir leik.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 - 0 Fylkir
„Auðvitað eru vonbrigði að tapa fótboltaleikjum. Við vorum fínir varnarlega en sóknarlega náðum við ekki að opna þá af neinu ráði. Það gekk svolítið hægt hjá okkur. Niðurstaðan er tap en við lögðum allt í þetta þannig að við verðum að virða það og þakka Fylkismönnum fyrir geggjaðan stuðning," sagði Heimir.
Þróttarar byrjuðuð leikinn betur enda var skjálfti í Árbæingum fyrstu mínúturnar.
„Já, það var skjálfti. Við vorum ekki nægilega góðir á boltanum, eðlilega svo sem. Það eru ekki margir sem hafa spilað svona stóran leik. Það rjátlaði af okkur og skipulagið hélt. Við áttum einhverja möguleika.
Svo dró Venni liðið sitt tilbaka í seinni hálfleik og þeir fengu tvö færi í gegnum skyndisóknir. Þess vegna voru vonbrigði að fá þetta mark á sig þar sem við vorum í skipulagi. Þeir lágu til baka í seinni hálfleik og ég ætla að gefa Venna það að hann er farinn að átta sig á því að það er ekki bara possession sem verður þess valdandi að þú vinnur leiki. Þeir eru með besta varnarliðið í deildinni og það sýndi sig í dag," sagði Heimir að lokum.