Fotbolti.net
19.09.26 - 19:02
Sölvi Haraldsson

Hlynur Þórhalls: Enginn brandarastimpill á okkur lengur

Auglýsing
Bræðurnir Nörður (vinstri) og Hlynur (hægri).

Bræðurnir Nörður (vinstri) og Hlynur (hægri).

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin
„Þetta er bara geðveikt og það er yndislegt að sjá svona marga Þróttara hérna í stúkunni með okkur, vonandi verður þetta í Bestu deildinni þegar við spilum okkar fyrsta leik þar.“ sagði Hlynur Þórhallsson, leikmaður Þróttar, sem voru að tryggja sér sæti í Bestu deildinni með sigri á Fylki í dag á Laugardalsvelli.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 - 0 Fylkir
„Þetta var týpískur úrslitaleikur. Fyrstu 30 mínúturnar vorum við virkilega góðir og okkur leið ótrúlega vel á vellinum. En í seinni hálfleik var þetta stál í stál og algjör skákleikur en sem betur fer datt markið okkar meginn.“

Hvernig leið þér þegar Aron skoraði og svo þegar lokaflautið skall á?

„Mér leið alveg ógeðslega vel, ólýsanlegt.“

Venni, þjálfari Þróttar, talaði um það í aðdragandanum að brandarastimpillinn væri farinn af Þrótti, Hlynur tók undir það.

„Ég er bara sammála því. Kvennaliðið er búið að vinna Mjólkurbikarinn og viku seinna fer karlaliðið upp í Bestu deildina, það er engin brandarastimpill á okkur lengur, sammála því.“ sagði Hlynur en viðtalið í heild sinni má finna í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.