Fotbolti.net
19.09.26 - 18:09
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Ítalía: Fyrirliðinn bjargaði stigi í dramatískum stórleik

Ítalía: Fyrirliðinn bjargaði stigi í dramatískum stórleik
Canon

Mynd: EPA

Þremur fyrstu leikjum dagsins er lokið í efstu deild á Ítalíu þar sem Ítalíumeistarar Inter heimsóttu ógnarsterkt lið AS Roma í því sem gæti reynst einn stærsti leikur tímabilsins. Bæði lið voru með fullt hús stiga fyrir upphafsflautið.
Roma er talið vera líklegasta liðið til að veita Inter samkeppni um Ítalíumeistaratitilinn og byrjuðu lærlingar Gian Piero Gasperini af miklum krafti.

Franski landsliðsmaðurinn Manu Koné, sem er þekktur fyrir allt aðra hluti en mikla markaskorun, kom Rómverjum yfir snemma leiks og tvöfaldaði svo forystuna á 37. mínútu.

Roma var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en Inter fékk góð færi. Mile Svilar var stórkostlegur á milli stanga Rómverja svo þeir leiddu 0-2 í leikhlé.

Cristian Chivu þjálfari Inter hefur haldið þrumuræðu í leikhlé því hans menn mættu grimmir út í seinni hálfleikinn og var fyrirliðinn Lautaro Martínez fljótur að minnka muninn. Hann afgreiddi mjög erfitt færi meistaralega eftir frábæran undirbúning frá Marcus Thuram.

Það ríkti þokkalegt jafnræði með liðunum í síðari hálfleik þar sem Inter var aðeins sterkari aðilinn en fann ekki leið til að skora framhjá öflugum Svilar. Á lokakaflanum fékk Inter hornspyrnu og komst ótrúlega nálægt því að skora áður en Lautaro fékk boltann í góðri stöðu og tókst að koma honum framhjá Svilar, sem var þó ekki langt frá því að verja.

Hvorugu liði tókst að bæta marki við leikinn svo lokatölur urðu 2-2. Fyrirliðinn Lautaro Martínez bjargaði stigi með tvennu í seinni hálfleik til að svara tvennu Manu Koné frá því í fyrri hálfleiknum.

Stórveldin deila toppsæti Serie A, með 13 stig eftir 5 umferðir. Næstu leikir eru í október þar sem þriggja vikna landsleikjahlé er framundan.

Fyrr í dag gerði Bologna jafntefli við Torino á meðan Daniel Maldini skoraði eina markið í sigri Cagliari á útivelli gegn Udinese. Keinan Davis framherji Udinese fór meiddur af velli í fyrri hálfleik.

Roma 2 - 2 Inter
1-0 Manu Kone ('6 )
2-0 Manu Kone ('37 )
2-1 Lautaro Martinez ('46 )
2-2 Lautaro Martinez ('79 )

Bologna 1 - 1 Torino
1-0 Federico Bernardeschi ('14 )
1-1 Sandro Kulenovic ('77 )

Udinese 0 - 1 Cagliari
0-1 Daniel Maldini ('54 )
Ítalía: Fyrirliðinn bjargaði stigi í dramatískum stórleik
Canon

Mynd: EPA

Ítalía: Fyrirliðinn bjargaði stigi í dramatískum stórleik
Canon

Mynd: EPA

Ítalía: Fyrirliðinn bjargaði stigi í dramatískum stórleik
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.