19.09.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía í dag - Sterkustu liðin mætast í Róm

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það verða fjórir leiknir spilaðir í efstu deild á Ítalíu í dag og í kvöld þar sem einn stærsti leikur tímabilsins fer fram.
AS Roma hefur verið að gera frábæra hluti undir stjórn Gian Piero Gasperini og er talið vera eitt af fáum liðum deildarinnar sem getur veitt Ítalíumeisturum Inter samkeppni um titilinn næsta vor.
Roma og Inter eigast við í dag og verður ekkert gefið eftir í þessum síðasta leik fyrir tvöfalt landsleikjahlé.
Roma og Inter eru með fullt hús stiga eftir fjórar fyrstu umferðir deildartímabilsins en stórveldin fóru ekki jafn vel af stað í Meistaradeildinni. Þau áttu bæði erfiða útileiki, þar sem Roma gerði jafntefli við Fenerbahce og Inter tapaði fyrir Real Madrid.
Bologna og Torino eigast við í fyrsta leik dagsins á sama tíma og Udinese spilar við Cagliari. Albert Guðmundsson og félagar í Lazio heimsækja nýliða Venezia í lokaleik kvöldsins, en Þórir Jóhann Helgason er á mála hjá Feneyingum.
Leikir dagsins
13:00 Bologna - Torino
13:00 Udinese - Cagliari
16:00 Roma - Inter
18:45 Venezia - Lazio

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Roma | 4 | +11 | 12 |
| 2 | Inter | 4 | +7 | 12 |
| 3 | Como | 4 | +5 | 10 |
| 4 | Lazio | 4 | +3 | 10 |
| 5 | Cagliari | 4 | +2 | 9 |
| 6 | Milan | 4 | +3 | 8 |
| 7 | Frosinone | 4 | +3 | 7 |
| 8 | Juventus | 4 | +2 | 7 |
| 9 | Sassuolo | 5 | 0 | 7 |
| 10 | Napoli | 4 | +1 | 6 |
| 11 | Atalanta | 4 | 0 | 6 |
| 12 | Lecce | 4 | -2 | 6 |
| 13 | Udinese | 4 | -2 | 4 |
| 14 | Monza | 5 | -4 | 4 |
| 15 | Torino | 4 | -3 | 3 |
| 16 | Fiorentina | 4 | -6 | 3 |
| 17 | Bologna | 4 | -3 | 1 |
| 18 | Parma | 4 | -4 | 1 |
| 19 | Genoa | 4 | -6 | 1 |
| 20 | Venezia | 4 | -7 | 0 |