Fotbolti.net
19.09.26 - 20:32
Ívan Guðjón Baldursson

Jón Dagur hetjan hjá Hertha - Davíð Snær lagði upp

Jón Dagur hetjan hjá Hertha - Davíð Snær lagði upp
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Síðustu leikjum dagsins er lokið hjá Íslendingunum sem leika í Evrópu. Í dag var Jón Dagur Þorsteinsson í sviðsljósinu Hertha Berlin í næstefstu deild í Þýskalandi.
Hertha lenti undir á útivelli gegn Dynamo Dresden en Jón Dagur jafnaði metin með góðu skoti rétt fyrir utan D-bogann. Sjáðu markið.

Staðan var 1-1 eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik en Hertha skipti um gír eftir leikhlé og fékk nokkur góð færi áður en Jón Dagur gerði það sem reyndist sigurmark leiksins. Aftur lét Jón Dagur vaða rétt fyrir utan D-bogann og tryggði þannig sigur með tveimur frábærum einstaklingsframtökum. Sjáðu markið.

Hertha trónir á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir sex umferðir. Dynamo Dresden er í fallsæti með fjögur stig. Jón Dagur hefur byrjað tímabilið frábærlega í Berlín og er á sínum stað í íslenska landsliðshópnum fyrir komandi verkefni í Þjóðadeildinni gegn Eistlandi, Lúxemborg og Búlgaríu.

Í öðrum leikjum dagsins gaf Davíð Snær Jóhannsson stoðsendingu í stórsigri Bryne í næstefstu deild norska boltans. Bryne vann fjögurra marka sigur á útivelli gegn Breka Baldurssyni og félögum í Asane. Breki lék fyrri hálfleikinn en var skipt af velli í leikhlé í stöðunni 0-3.

Bryne er í fimmta sæti eftir þennan sigur og er í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppni deildarinnar þar sem toppliðin berjast um sæti í efstu deild. Asane situr eftir í harðri fallbaráttu með 19 stig eftir 23 umferðir - fjórum stigum frá öruggu sæti.

Í danska boltanum varði Elías Rafn Ólafsson mark Midtjylland og átti góðar vörslur til að tryggja jafntefli í erfiðum útileik í Óðinsvé. Lokatölur urðu 1-1 og er Midtjylland í öðru sæti, tveimur stigum á eftir toppliði FCK sem á leik til góða.

Í Skotlandi var Tómas Bent Magnússon í byrjunarliði Hearts en var skipt af velli á 59. mínútu, þegar Hearts var óvænt marki undir á útivelli gegn Kilmarnock.

Hearts var talsvert sterkari aðilinn allan leikinn og tókst liðsfélögum Tómasar að jafna metin undir lokin, svo lokatölur urðu 1-1. Hearts er í öðru sæti deildarinnar með 13 stig eftir 7 umferðir, jafn mörg stig og stórveldi Rangers sem á leik til góða. Ríkjandi meistarar Celtic eru með fullt hús stiga.

Á Spáni kom Sigurður Bjartur Hallsson inn af bekknum í tapi Mérida á útivelli gegn Ponferradina í þriðju efstu deild á Spáni. Sigurði tókst ekki að skora og urðu lokatölur 1-0. Mérida er aðeins með þrjú stig eftir fjórar fyrstu umferðir tímabilsins.

Í efstu deild hollenska boltans hélt Ágúst Orri Þorsteinsson sæti sínu í byrjunarliði Excelsior. Hann lék fyrstu 70 mínúturnar á útivelli gegn stórveldi Ajax og var skipt útaf í stöðunni 2-2. Hvorugu liði tókst að gera sigurmark og er Excelsior með 11 stig eftir 7 umferðir - þremur stigum minna en Ajax.

Að lokum komu nokkur Íslendingalið við sögu í kvennaboltanum. Þar voru Andrea Rut Bjarnadóttir og Vigdís Lilja Kristjánsdóttir í byrjunarliði Anderlecht sem lagði Zulte Waregem að velli í þriðju umferð deildartímabilsins.

Anderlecht er með fullt hús stiga í efstu deild í Belgíu.

Parma komst þá áfram í bikarnum, á meðan Aarau tapaði fyrir Young Boys og Esbjerg steinlá gegn Österbro.

Dynamo Dresden 1 - 2 Hertha Berlin
1-0 P. Covic ('10)
1-1 Jón Dagur Þorsteinsson ('29)
1-2 Jón Dagur Þorsteinsson ('79)

Asane 0 - 4 Bryne

OB 1 - 1 Midtjylland

Kilmarnock 1 - 1 Hearts

Ponferradina 1 - 0 Merida

Ajax 2 - 2 Excelsior

Sparta Rotterdam 0 - 4 Heerenveen

Molde 1 - 2 Aalesund

Oddevold 1 - 2 Varnamo

Arezzo 0 - 3 Parma

Aarau 1 - 2 Young Boys

Österbro 4 - 1 Esbjerg
Jón Dagur hetjan hjá Hertha - Davíð Snær lagði upp
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Dagur hetjan hjá Hertha - Davíð Snær lagði upp
Canon

Mynd: EPA

Jón Dagur hetjan hjá Hertha - Davíð Snær lagði upp
Canon

Mynd: Hearts

Jón Dagur hetjan hjá Hertha - Davíð Snær lagði upp
Canon

Mynd: Excelsior

Jón Dagur hetjan hjá Hertha - Davíð Snær lagði upp
Canon

Mynd: Anderlecht

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.