Fotbolti.net
19.09.26 - 12:43
Brynjar Ingi Erluson

Kane staðfestir viðræður

Harry Kane verður líklega áfram hjá Bayern

Harry Kane verður líklega áfram hjá Bayern

Canon

Mynd: EPA

Enski framherjinn Harry Kane hefur staðfest að hann sé í viðræðum við Bayern München um nýjan samning.
Kane hefur verið óstöðvandi síðan hann gekk í raðir Bayern München frá Tottenham fyrir þremur árum.

Á þeim tíma hefur hann skorað 152 mörk og lagt upp önnur 34 í 154 leikjum fyrir félagið.

Samningur hans við Bæjara rennur út á næsta ári, en flest bendir til þess að hann verði áfram hjá félaginu.

„Ég er ótrúlega ánægður hér hjá Bayern og viðræður eru í gangi. Ég er þakklátur fyrir stuðninginn sem ég hef fengið frá stuðningsmönnunum,“ sagði Kane.

Kane, sem er 33 ára gamall, skoraði tvö mörk í 7-0 stórsigri Bayern á Union Berlín í gær og er nú kominn með þrjú deildarmörk í fyrstu fjórum leikjunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.