19.09.26 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
„Keyptum leikmenn sem passa við hugmyndir Enzo"

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: Manchester City

Mynd: Manchester City

Mynd: EPA
Hugo Viana, yfirmaður fótboltamála hjá Manchester City, er ánægður með sumarglugga félagsins.

TENGT EFNI
Enzo: Enda vita allir hversu vel Man City er rekið
Það var gríðarlega mikið um félagaskipti þar sem Rodri, Nico González, Tijjani Reijnders, Savinho, Omar Marmoush, James Trafford, Manuel Akanji, Nathan Aké, Bernardo Silva og John Stones yfirgáfu félagið, auk Pep Guardiola þjálfara.
Miðjumennirnir Elliot Anderson, Ayyoub Bouaddi og Enzo Fernández voru keyptir inn fyrir rúmlega 300 milljónir punda. Auk þeirra voru Iliman Ndiaye og Allan keyptir inn ásamt Gerónimo Rulli og bráðefnilegum Mathys Detourbet og Jeremy Monga.
Viana segir að félagið hafi keypt inn leikmenn í sumar sem passa við þann leikstíl sem Enzo Maresca nýr þjálfari vill spila.
„Mér fannst við standa okkur vel í þessum glugga, við héldum haus og styrktum liðið. Þetta var öðruvísi sumar útaf því að við réðum inn nýjan þjálfara og þurftum að kaupa mikið af leikmönnum, svo var HM í sumar og það frestaði öllu. Það mikilvæga er að við héldum okkur rólegum og sýndum þolinmæði," segir Viana.
„Við erum virkilega ánægðir með okkar viðskipti í glugganum og Enzo (Maresca) er það líka. Við keyptum inn leikmenn sem passa vel við hugmyndir þjálfarans og náðum að fylla í öll skörð.
„Okkur líður vel núna en auðvitað þurfum við að bíða og sjá hvernig þetta þróast allt saman. Við verðum að gefa nýju leikmönnunum tíma til aðlögunar og þjálfaranum líka. Þeir verða að læra inn á hvernig Enzo vill spila.
„Mér finnst ekki sanngjarnt að segja að við séum með betra lið núna en fyrir gluggann. Við vorum með rosalega mikil gæði fyrir, en núna erum við búnir að yngja upp. Við erum með mjög ungan og spennandi leikmannahóp. Við keyptum leikmenn sem geta verið mikilvægir fyrir okkur næstu árin, bæði leikmenn með reynslu úr úrvalsdeildinni og efnilega leikmenn erlendis frá. Þetta er langtímaverkefni."
Viana er líka ánægður með þjálfarann, en hann þekkir vel til hjá City eftir að hafa verið aðstoðarþjálfari Pep Guardiola tímabilið 2022-23.
„Enzo þekkti félagið eftir tíma sinn hérna áður, hann er ekki nýr hér. Hann hefur aðlagast vel og kemur inn með sínar eigin hugmyndir og sína sýn. Þetta er ekki alveg sama nálgun og Pep var með, en Enzo hefur byrjað mjög vel. Þetta er stór áskorun."