Fotbolti.net
19.09.26 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson

Messi vann 49. titilinn með 929. markinu

Messi vann 49. titilinn með 929. markinu
Canon

Mynd: MLS

Lionel Messi skoraði á dögunum í úrslitaleik Campeones Cup bikarkeppni Norður-Ameríku gegn mexíkóska stórveldinu Cruz Azul.
Messi fagnaði titli og Beckham telur hann eiga skilið að fá gullboltann
TENGT EFNI

Messi fagnaði titli og Beckham telur hann eiga skilið að fá gullboltann

Casemiro skoraði einnig í sigrinum og hjálpuðu þessar stórstjörnur að tryggja Inter Miami titilinn. Messi gaf stoðsendinguna til að innsigla 2-0 sigur á lokakafla leiksins, eftir að Luis Suárez hafði lagt upp fyrir Messi í fyrri hálfleik.

Þetta er 49. titillinn sem Messi vinnur á sínum ferli sem atvinnumaður í fótbolta. Hann skoraði sitt hundraðasta mark fyrir Inter og er sneggsti leikmaður í sögu MLS deildarinnar til þess að skora 100 mörk í öllum keppnum fyrir félagslið sitt.

Það tók Messi ekki nema 114 leiki að skora 100 mörk fyrir Inter, en auk þess er hann með 56 stoðsendingar á dvöl sinni hjá félaginu hingað til.

Hann er þar með búinn að skora 929 mörk á ferlinum. Hann er næstmarkahæstur í sögunni á eftir Cristiano Ronaldo, sem er búinn að skora 50 mörkum meira. Ronaldo er aðeins 21 marki frá því að verða fyrsti fótboltamaður sögunnar til að skora 1000 mörk.

Messi fagnaði 39 ára afmæli í sumar og verður Ronaldo 42 ára í febrúar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.